Pétur Bjarnason farinn frá Vestra (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Pétur Bjarnason verður ekki með Vestra á komandi tímabili. Þetta staðfestir hann við Fótbolta.net.
Fótbolti.net fékk ábendingu um að skórnir gætu verið komnir upp í hillu hjá Pétri. Pétur var spurður út í það og sagði að það væri ekki í plönum hans eins og er að spila fótbolta í sumar.
Pétur er 28 ára framherji sem uppalinn er hjá Vestra (BÍ/Bolungarvík) og sneri aftur heim í Vestra á síðasta tímabili eftir eitt tímabil með Fylki.

TENGT EFNI
Komnir/farnir og samningslausir í Bestu og Lengjudeildinni
Pétur kom við sögu í 20 deildarleikjum á síðasta leiktíð og skoraði þrjú mörk. Hann skoraði þá eitt mark í tveimur bikarleikjum. Alls hefur hann skorað 60 deildarmörk og 15 bikarmörk á ferlinum.