Fotbolti.net
31.01.25 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Sheffield fær tvo lánsmenn úr úrvalsdeildinni (Staðfest)

Sheffield fær tvo lánsmenn úr úrvalsdeildinni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Sheffield United hefur verið að styrkja leikmannahópinn sinn fyrir komandi átök í titilbaráttu Championship deildarinnar.
Chris Wilder og lærisveinar hans voru að fá góðan liðsstyrk á dögunum þar sem Harry Clarke og Hamza Choudhury eru komnir á lánssamningum sem gilda út tímabilið.

Clarke kemur úr röðum Ipswich Town á meðan Choudhury kemur frá Leicester.

Clarke er 23 ára fjölhæfur varnarmaður sem leikur sem hægri bakvörður að upplagi en er ekki með sæti í byrjunarliðinu hjá Ipswich. Hann spilaði 7 leiki fyrir liðið í úrvalsdeildinni á tímabilinu.

Choudhury er 27 ára miðjumaður sem spilaði aðeins 4 leiki fyrir Leicester í úrvalsdeildinni á tímabilinu.

Clarke og Choudhury búa yfir góðri reynslu úr Championship deildinni þar sem þeir fóru upp með Ipswich og Leicester á síðustu leiktíð og léku þá stærra hlutverk heldur en þeir gera í ár.

Sheffield er í öðru sæti Championship deildarinnar sem stendur, með 58 stig eftir 29 umferðir - tveimur stigum á eftir toppliði Leeds United.

Sheffield fær tvo lánsmenn úr úrvalsdeildinni (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.