Embla Katrín Oddsteinsdóttir er gengin til liðs við Fylki og gerir hún tveggja ára samning við Árbæinga.
Embla er 18 ára gömul og kemur til Fylkis úr röðum Selfoss, þar sem hún braust fram í sviðsljósið á síðustu leiktíð og var ein af fáum björtum punktum í liði Selfoss sem féll úr Lengjudeildinni.
Embla er uppalin hjá FH en æfði með 3. flokk hjá Breiðablik áður en hún flutti á Selfoss. Núna reynir hún fyrir sér með Fylki.
Embla spilaði 17 leiki í Lengjudeildinni í fyrra og einn í Mjólkurbikarnum. Nú fer hún yfir til Fylkis sem féll úr Bestu deildinni í fyrra og leikur því í Lengjudeildinni í ár.
„Hún er leikmaður sem að passar vel inn í okkar hugmyndafræði og það verður gaman að vinna með henni næstu tvö tímabil," segir Bjarni Þórður Halldórsson þjálfari Fylkis.
Athugasemdir