Fotbolti.net
31.01.25 - 09:05
Ívan Guðjón Baldursson

Höttur/Huginn fær Gerard frá Hamri (Staðfest)

Höttur/Huginn fær Gerard frá Hamri (Staðfest)
Canon

Mynd: Höttur/Huginn

Höttur/Huginn er búinn að krækja í spænska markvörðinn Gerard Tomás Iborra frá Hamri, en hann er 26 ára gamall og stóð sig frábærlega með Hvergerðingum í fyrra.
Gerard varði mark Hamars í 5. deildinni og fær næst að reyna fyrir sér með Hetti/Hugin sem leikur í 2. deild.

Það er ansi stórt stökk fyrir þennan öfluga markvörð og verður spennandi að fylgjast með honum í nýrri deild.

Höttur/Huginn fær Gerard í gegnum Áfram Football umboðsskrifstofuna sem Ignacio 'Nacho' Poveda, fyrrum leikmaður Þór, stofnaði.

Gerard er langt frá því að vera fyrsti Spánverjinn til að ganga til liðs við Hött/Hugin en Genis Arrastraria, Rafa Llop og André Solórzano voru allir hjá félaginu á síðustu leiktíð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.