Fotbolti.net
31.01.25 - 11:09
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Kristian Hlyns lánaður til Sparta Rotterdam (Staðfest)

Kristian Hlyns lánaður til Sparta Rotterdam (Staðfest)
Canon

Mynd: Sparta Rotterdam

Kristian Nökkvi Hlynsson er genginn í raðir Sparta Rotterdam á láni frá Ajax. Lánssamningurinn gildir út tímabilið. Kristian er 21 árs sóknarsinnaður miðjumaður.

Kristian hefur verið hjá Ajax í fimm ár og spilaði 34 leiki með liðinu á síðasta tímabili og skoraði sjö mörk. Tækifærin hafa verið af skornum skammti á þessu tímabili og meiðsli hafa einnig sett strik í reikninginn. Kristian vonast til þess að fá að spila meira hjá Sparta.

Hjá Sparta hittir hann fyrir þjálfarann Maurice Steijn sem var þjálfari Kristians hjá Ajax í byrjun síðasta tímabils.
„Við erum ánægðir að fá leikmann með hans gæði. Það hefur verið horft á Kristian sem mjög hæfileikaríkan leikmann í nokkur ár og hann hefur líka sýnt það í þessari deild. Þar sem Arno Verschueren fór þá hófum við leit að leikmönnum sem gætu hjálpað Sparta í þeirri stöðu sem liðið er í og einbeitingin fór strax á Kristian. Við erum ánægðir að geta bætt honum við hópinn," segir Gerard Nijkamp sem er yfirmaður tæknimála hjá Sparta.

Sparta er í 16. sæti, þremur stigum frá öruggu sæti og næsti leikur liðsins er gegn Groningen á sunnudag. Hjá Sparta hittir Kristian einnig fyrir Nökkva Þey Þórisson sem er þar á láni frá St. Louis City.

Kristian er samningsbundinn Ajax fram á sumarið 2026.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1ADO Den Haag000
1Feyenoord3+79
2Ajax000
2Zwolle3+47
3Utrecht2+56
3AZ000
4Vitesse3+46
4Cambuur Leeuwarden000
5PSV2+46
5Excelsior000
6Ajax3+36
6Feyenoord000
7AZ3+26
7Fortuna Sittard000
8Go Ahead Eagles000
8VV Venlo3+26
9Groningen000
9Heerenveen3+15
10Heracles Almelo3+15
10Heerenveen000
11Excelsior304
11NEC000
12Sparta Rotterdam3-32
12PSV000
13Sparta Rotterdam000
13Groningen2-21
14NAC3-61
14Telstar000
15Roda2-40
15Twente000
16Twente3-40
16Volendam34-2032
16Utrecht000
17ADO Den Haag3-60
17Willem II000
17NAC34-2329
18Heracles Almelo34-5019
18Zwolle000
18Willem II3-80
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.