Stokkseyringar ætla sér stóra hluti á komandi leiktíð í 5. deildinni og eru búnir að styrkja sig með öflugum leikmönnum.
Ingvi Rafn Óskarsson kemur inn í liðið með mikla reynslu eftir að hafa verið mikilvægur hlekkur í liði Selfyssinga á undanförnum árum. Hann er 31 árs gamall og með 30 mörk í 324 KSÍ-leikjum. Þar af skoraði hann 8 mörk í 81 leik með Selfossi í Lengjudeildinni.
Yngri bróðir hans er einnig genginn til liðs við félagið. Sá heitir Arilíus Óskarsson og hefur spilað fyrir Selfoss, Ægi og Árborg á sínum ferli. Arilíus er 26 ára og getur leyst ýmsar stöður. Hann hefur áður leikið fyrir Stokkseyri sumrin 2020 og 2023 og var þá í lykilhlutverki. Þeir verða þá þrír bræðurnir sem spila fyrir Stokkseyri þar sem Jóhann Fannar Óskarsson er einnig á mála hjá félaginu. Þeir eru synir Óskars Valbergs Arilíussonar, formanns umf. Stokkseyri.
Að lokum er Steinar Sigurjónsson genginn til liðs við Stokkseyringa eftir að hafa spilað með Árborg og Uppsveitum á undanförnum árum.
„Við erum gríðarlega ánægðir með þennan öfluga liðsstyrk og ýmislegt spennandi er að gerast á bakvið tjöldin. Von er á fleiri tilkynningum á næstunni..." segir meðal annars í tilkynningu frá Stoksseyri.
Athugasemdir