Tel vill helst fara til Man Utd - Annað tilboð í Mitoma - Watkins opinn fyrir Arsenal
   fös 31. janúar 2025 16:13
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Vigdís Lilja seld til Anderlecht (Staðfest)
Mynd: Anderlecht
Mynd: Anderlecht
Íslandsmeistarar Breiðablik hafa selt Vigdísi Lilju Kristjánsdóttur til belgísku meistaranna í Anderlecht.

Hún er komin með félagaskipti til Belgíu og skrifar undir samning sem gildir fram á sumarið 2027.

Vigdís, sem er uppalin í Kópavogi, er fædd árið 2005 og hefur spilað með meistaraflokki Breiðabliks frá árinu 2020. Vigdís á að baki fjölda leikja með U-16, U-17, U-19 og U-23 ára landsliðum Íslands.

Framherjinn skoraði ellefu mörk í 23 leikjum í Bestu deildinni í fyrra þegar Breiðablik varð Íslandsmeistari.

Hún varð einnig Íslandsmeistari 2020 og bikarmeistari 2021.

„Um leið og við þökkum Vigdís fyrir frábæran tíma, þá óskum við henni góðs gengis í Belgíu," segir í tilkynningu Breiðabliks.

Anderlecht er sem stendur í öðru sæti í belgísku deildinni eftir fjórtán leiki, stigi á eftir Diljá Ýr Zomers og stöllum hennar í Leuven. Anderlecht hefur orðið meistari síðustu sjö tímabil.

„Koma Vigdísar passar fullkomlega við hugmyndafræði okkar Vigdís er leikmaður sem getur strax haft áhrif á liðið en hún er enn ung og hefur nóg pláss til að bæta sig. Við viljum halda áfram að þróa hana hjá RSCA og undirbúa hana fyrir næsta skref á ferlinum," segir Dave Mattheus sem er yfirmaður hjá kvennaliði Anderlecht.
Athugasemdir
banner
banner