Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24405 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR27.12.2024, 22:00

Pelach rekinn frá Stoke (Staðfest)

Stoke City er búið að reka Narcis Pelach úr stöðu aðalþjálfara meistaraflokks eftir aðeins 19 leiki við stjórnvölinn.

FRÉTTIR27.12.2024, 14:30

Emilía Kiær í RB Leipzig (Staðfest)

Landsliðskonan Emilía Kiær Ásgeirsdóttir hefur yfirgefið Nordsjælland og gengið í raðir þýska félagsins RB Leipzig. Hin 19 ára gamla Emilía skrifar undir samning við Leipzig sem gildir til ársins 2028.

FRÉTTIR27.12.2024, 08:00

Nikola Kristinn til KFA (Staðfest)

Miðjumaðurinn Nikola Kristinn Stojanovic er genginn til liðs við KFA og gerir tveggja ára samning við félagið.

FRÉTTIR24.12.2024, 21:00

Oscar kominn heim í Sao Paulo (Staðfest)

Stuðningsmenn Sao Paulo í Brasilíu fengu veglega jólagjöf frá félaginu í ár en heimamaðurinn Oscar er genginn í raðir félagsins á frjálsri sölu.

FRÉTTIR23.12.2024, 15:30

Kevin Nolan tekinn við liði í ensku C-deildinni (Staðfest)

Kevin Nolan var í dag tilkynntur sem nýr stjóri Northampton Town. Hann skrifar undir tveggja og hálfs árs samning við enska C-deildar félagið. Nolan tekur við af Jon Brady sem hætti sem stjóri Northampton eftir tæplega fjögurra ára veru hjá félaginu.

FRÉTTIR23.12.2024, 15:00

Laufey Steinunn í Fjölni (Staðfest)

Laufey Steinunn Kristinsdóttir er gengin í raðir Fjölnis og skrifar undir tveggja ára samning við félagið. Laufey er 19 ára, afar efnilegur alhliða varnarmaður og kemur til Fjölnis frá KR. Hún hefur nú þegar leikið 3 æfingaleiki með liðinu og staðið sig afar vel. Laufey á að baki meistaraflokksleiki með KR, Sindra og KH.

FRÉTTIR23.12.2024, 14:20

Alessandro Nesta rekinn frá Monza (Staðfest) - Vann einungis einn leik

Alessandro Nesta var í dag rekinn sem stjóri ítalska félagsins Monza en sparkið kemur í kjölfar 2-1 taps gegn Juventus í gær. Það var þriðja tap Monza í röð. Monza hefur ekki unnið í síðustu níu leikjum og situr í botnsæti deildarinnar. Fimm stig eru upp í Verona sem er í 17. sætinu, síðastaö örugga sætinu í ítölsku úrvalsdeildinni. Nesta vann einungis einn leik hjá Monza en sigurinn kom einmitt gegn Verona.

FRÉTTIR23.12.2024, 13:44

Stígur Diljan heim í Víking (Staðfest)

Stígur Diljan Þórðarson er genginn í raðir Víkings og skrifar hann undir samning út árið 2028. Hann er keyptur til Víkings frá Triestina á Ítalíu en hann samdi við ítalska félagið í sumar. Hann var fyrst orðaður við Víking fyrir um tveimur vikum síðan. Stígur er unglingalandsliðsmaður, fæddur 2006, og fór frá portúgalska stórliðinu Benfica til Triestina í sumar. Hann fékk afskaplega lítið að spila á Ítalíu og er nú kominn heim í Víkinna þar sem hann er uppalinn. Hann var seldur frá Víkingi til Benfica haustið 2022 eftir að hafa komið við sögu í einum deildarleik og einum bikarleik með Víkingi.

FRÉTTIR23.12.2024, 13:30

ÍA krækir í annan unglingalandsliðsmann frá KFA (Staðfest)

ÍA heldur áfram að sækja unga og efnilega leikmenn af landsbyggðinni. Fyrir helgi var fjallað um komu Brynjars Óðins Atlasonar frá Hamri og í dag bættist annar við því Daníel Michal Grzegorzsson hefur skrifað undir samning við félagið. Daníel Michal er fæddur árið 2009 og á að baki þrjá leiki fyrir U15 landsliðið á UEFA móti í október í fyrra. Hann skoraði eitt mark á mótinu. Í sumar kom Daníel við sögu í tveimur deildarleikjum með KFA í 2. deild og lék einn leik í Fótbolti.net bikarnum þar sem hann skoraði í sigri á Ými. Hann var svo nýlega valinn í æfingahóp U16 landsliðsins sem kemur saman í janúar.

FRÉTTIR23.12.2024, 11:00

Kristófer Dan og Benedikt Þór í Gróttu (Staðfest)

Grótta tilkynnti í dag að Benedikt Þór Viðarsson og Kristófer Dan Þórðarson væru gengnir í raðir félagsins. Benedikt Þór er uppalinn í Gróttu en hefur verið hjá KR og Val síðustu ár. Hann er 17 ára framsækinn leikmaður sem á að baki sex leiki með KH, venslaliði Vals. Kristófer Dan er uppalinn FH-ingur sem leikið hefur með Haukum, ÍH og Reyni Sandgerði. Kristófer kemur til Gróttu frá Reyni Sandgerði. Hann skoraði þrjú mörk í sjö leikjum í 2. deild í sumar en hann kom til Reynis frá ÍH í glugganum eftir að hafa skorað níu mörk í 15 leikjum fyrri hluta sumars. Fyrr í vetur æfði hann með Grindavík þar sem hann var til reynslu. <i>„Kristófer hefur skorað 29 mörk í 80 leikjum í 1., 2. og 3. deild og mun vonandi þenja netmöskvana í bláu treyjunn í sumar,"</I> segir í tilkynningu Gróttu. Hann <i>„Við erum að byggja upp spennandi hóp fyrir komandi tímabil og fáum nú inn tvo leikmenn til að þétta raðirnar í fremstu víglínu. Benni er orkumikill og metnaðarfullur leikmaður með mikinn vilja til að bæta sig. Hann er bara 17 ára og á framtíðina fyrir sér ef hann heldur rétt á spöðunum. Kristófer hefur gengið í gegnum erfið meiðsli og veikindi síðustu árin en er nú kominn í fantaform og við fögnum því að hann velji Gróttu til að taka næsta skrefið á sínum ferli. Ég er viss um að Kristófer muni hrella varnarmenn andstæðinga okkar næsta sumar með snerpu sinni og áræðni,"</I> segir Magnús Örn Helgason, yfirmaður fótboltamála, um komu nýju leikmannanna.

FRÉTTIR23.12.2024, 10:00

Eggert Gunnþór þjálfar KFA næstu tvö árin (Staðfest) - Fimm framlengja

KFA hefur tilkynnt um áframhaldandi samstarf við Eggert Gunnþór Jónsson en hann tók við sem þjálfari liðsins í sumar. Hann gerir nú tveggja ára samnijng við félagið. Hann mun áfram vera spilandi þjálfari liðsins. Eggert Gunnþór er 36 ára miðjumaður, fyrrum atvinnu- og landsliðsmaður sem uppalinn er hjá Fjarðabyggð og gekk í raðir KFA síðasta vetur. Hann var orðaður við aðstoðarþjálfarastarfið hjá Fylki í vetur en heldur tryggð við KFA. Eggerti til aðstoðar verður Hlynur Bjarnason en hann skrifaði einnig undir tveggja ára samning.

FRÉTTIR22.12.2024, 21:28

Logi Hrafn til Króatíu (Staðfest)

U21 landsliðsmaðurinn Logi Hrafn Róbertsson er búinn að skrifa undir þriggja og hálfs árs samning við króatíska félagið NK Istra, sem leikur í efstu deild í heimalandinu.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.