Fylkir er búið að krækja í Guðrúnu Þóru Geirsdóttur sem hefur leikið á Selfossi síðustu þrjú ár.
Guðrún Þóra er uppalinn Húsvíkingur og spilaði með meistaraflokki Völsungs áður en hún flutti á Selfoss.
Guðrún gerir tveggja ára samning við Fylki sem leikur í Lengjudeildinni næsta sumar eftir fall úr Bestu deildinni. Hún á 31 leik að baki í Lengjudeildinni og 17 í Bestu deildinni.
Guðrún er 20 ára gömul og er afar fjölhæfur leikmaður sem getur leyst margar stöður á vellinum.
Athugasemdir