Grindavík fær Árna Salvar frá ÍA (Staðfest)

Mynd: Grindavík

Mynd: Grindavík
Grindavík er búið að krækja í Árna Salvar Heimisson á eins árs lánssamningi frá ÍA.
Árni Salvar er fjölhæfur 21 árs gamall leikmaður sem er hægri bakvörður að upplagi en getur einnig spilað sem miðvörður og miðjumaður.
Árni er uppalinn hjá ÍA og er með 57 deildarleiki að baki fyrir Skagamenn, hann spilaði 12 leiki í Bestu deildinni á síðustu leiktíð.
„Ég er mjög ánægður að fá Árna til liðs við okkur. Hann er mjög kraftmikill og baráttuglaður bakvörður. Þetta er frábær karakter og ég hlakka til að vinna með honum á komandi ári hjá Grindavík,“ segir Haraldur Árni Hróðmarsson, þjálfari Grindavíkur.