FRÉTTIR11.12.2024, 13:30
AaB í Álaborg tilkynnti í morgun að félagið hefði fengið norska miðjumanninn Isak Hansen-Aaröen lánaðan út tímabilið.
Hansen-Aaröen kemur frá Werder Bremen en hann var hjá Manchester United í þrjú og hálft ár, án þess að spila fyrir aðallið félagsins.
Hann hefur spilað þrjá leiki fyrir Werder Bremen og er lýst sem sóknarhuguðum miðjumanni með sköpunarmátt.
FRÉTTIR11.12.2024, 08:00
Gunnar Jónas Hauksson og Marvin Darri Steinarsson hafa yfirgefið herbúðir Vestra en þetta staðfesti félagið í gær.
FRÉTTIR10.12.2024, 19:59
HK hefur samið við miðjumanninn Rúrik Gunnarsson en hann kemur til félagsins frá KR.
FRÉTTIR10.12.2024, 17:22
Paragvæski landsliðsmaðurinn Diego Gomez verður leikmaður Brighton þegar glugginn opnar þann 1. janúar.
Brighton mun fá þennan 21 árs miðjumann frá bandaríska MLS-liðinu Inter Miami þar sem hann var samherji Lionel Messi.
FRÉTTIR10.12.2024, 16:30
Miðjumaðurinn Naby Keita hefur skrifað undir samning við Ferencvaros í Ungverjalandi. Hann kemur þangað á láni frá Werder Bremen.
Keita er aðeins 29 ára gamall og lék fyrir Liverpool í fimm ár áður en hann skipti yfir til Werder Bremen á frjálsri sölu í fyrrasumar.
FRÉTTIR10.12.2024, 13:00
Keflavík tilkynnti í dag að Ariela Lewis væri búin að skrifa undir samning út tímabilið 2026.
Ariela kom til Keflavíkur í sumar á láni frá Aftureldingu og er nú alfarið gengin í raðir félagsins.
Hún skoraði tvö mörk í fimm leikjum í Bestu deildinni seinni hluta sumars og hefur alls skorað 38 mörk í 60 leikjum á Íslandi.
FRÉTTIR10.12.2024, 07:30
ÍR er búið að ráða nýja þjálfara fyrir meistaraflokk kvenna eftir að Breiðhyltingar enduðu í neðsta sæti Lengjudeildarinnar í sumar.
FRÉTTIR09.12.2024, 16:19
Breiðablik tilkynnti í dag að Samantha Rose Smith muni taka slaginn áfram með Íslandsmeisturunum á næsta ári.
Samantha kom til Breiðabliks frá FHL á láni seinni hluta tímabilsins og kom frábærlega inn í lið Blika sem unnu sinn fyrsta Íslandsmeistarartitil síðan 2020.
FRÉTTIR09.12.2024, 16:06
David Coote hefur verið rekinn úr starfi sem dómari í ensku úrvalsdeildinni.
Coote komst í fréttirnar eftir að myndband fór í dreifingu þar sem hann fór ófögrum orðum um Jurgen Klopp. Í kjölfarið birtist svo annað myndband þar sem hann sást neyta eiturlyfja. Einnig var fjallað um að hann hefði verið að plana eiturlyfjapartí á meðan hann var að starfa á leik.
FRÉTTIR09.12.2024, 13:30
Þeir Djenairo Daniels og Gustav Bonde Dahl verða ekki áfram hjá Fram. Daði Guðmundsson, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Fram, staðfestir það í samtali við Fótbolta.net.
Daniels er framherji sem gekk í raðir Fram í sumarglugganum og skoraði tvö mörk í tólf leikjum með liðinu. Hann er 22 ára Hollendingur sem lék síðast með Leixoes í Portúgal. Samningur hans við Fram rann út í síðasta mánuði og verður ekki endursamið við hann.
FRÉTTIR09.12.2024, 11:27
Grótta hefur endurheimt þá Daða Má Patrek Jóhannsson og Einar Tómas Sveinbjarnarson fyrir komandi átök í 2. deild.
Daði Már þótti mjög efnilegur á sínum tíma og varð árið 2016 yngsti leikmaðurinn til að spila með meistaraflokki í sögu Gróttu en Orri Steinn Óskarsson sló svo það met tveimur árum síðar. Hann yfirgaf Gróttu eftir tímabilið 2020 og hefur leikið með Augnabliki og Kríu síðan.
<i>„Daði Már er 23 ára gamall og þótti einn efnilegasti knattspyrnumaður Gróttu í yngri flokkunum. Sumarið 2016 varð hann yngsti leikmaðurinn til að spila með meistaraflokki og sló þar við Viggó Kristjánssyni sem átti metið. Það var svo Orri Steinn Óskarsson sem tók metið af Daða tveimur árum síðar, rétt fyrir 14 ára afmælisdaginn sinn, og það met stendur enn. Á miðárinu í 2. flokki lenti Daði í þrálátum veikindum sem tengdust miltanu og gat hann því lítið æft og spilað í tvö heil ár. Um tvítugt náði hann heilsu á ný og hefur síðustu ár leikið 48 meistaraflokksleiki í 3.,4. og 5. deild."</I>
FRÉTTIR07.12.2024, 14:48
<p>Vuk Oskar Dimitrijevic er genginn til liðs við Fram eftir að samningur hans við FH rann út í síðasta mánuði. Hann skrifar undir tveggja ára samning.</p>
FRÉTTIR07.12.2024, 12:01
<p>Dagur Ingi Axelsson er genginn til liðs við HK frá Fjölni en hann gerir þriggja ára samning við Kópavogsliðið.</p>
FRÉTTIR06.12.2024, 20:06
Spænski þjálfarinn Ruben Selles er hættur með lið Reading og tekinn við Hull City en þetta kemur fram í tilkynningu frá félögunum í dag. Noel Hunt tekur við stjórastöðunni hjá Reading.
FRÉTTIR06.12.2024, 18:39
Jörgen Pettersen er að genginn í raðir ÍBV en hann kemur á frjálsri sölu þar sem samningur hand við Þrótt Reykjavík var runninn út. Hann skrifar undir eins árs samning í Vestmannaeyjum.
Þorlákur Árnason, þjálfari ÍBV, ræddi við Fótbolta.net um Jörgen.
FRÉTTIR06.12.2024, 12:12
HK tilkynnti í dag að Haukur Leifur Eiríksson væri orðinn nýr leikmaður félagsins. Fótbolti.net greindi frá því í vikunni að hann væri búinn að skrifa undir samning við félagið og gildir sá samningur út tímabilið 2027.
Haukur er 22 ára gamall og er uppalinn hjá FH. Hann kemur til HK frá Þrótti Vogum þar sem hann hefur spilað síðustu fjögur tímabil.
Fyrsta tímabilið, 2021, lék Haukur undir stjórn Hermanns Hreiðarssonar hjá Þrótti en Hemmi tók við HK eftir að tímabilinu í ár lauk. Haukur er fyrsti leikmaðurinn sem Hemmi sækir.
FRÉTTIR06.12.2024, 12:00
Afturelding kynnir í dag fjóra leikmenn á fréttamannafundi sem haldinn er í Hlégarði í Mosfellsbæ. Leikmennirnir sem um ræðir eru Axel Óskar og Jökull Andréssynir, Oliver Sigurjónsson og Þórður Gunnar Hafþórsson.
Axel Óskar (1998) er uppalinn hjá Aftureldingi og hélt til Englands eftir að hafa spilað með liðinu í 2. deild fyrir áratug síðan. Hann sneri aftur til Íslands síðasta vetur og samdi við KR. Miðvörðurinn rifti samningi sínum við KR í síðasta mánuði.
FRÉTTIR04.12.2024, 16:39
Stjarnan tilkynnti rétt í þessu að félagið væri búið að ganga frá kaupum á Benedikt V. Warén en hann kemur frá Vestra. Stjarnan hafði síðustu vikur reynt að krækja í Benedikt og var fjallað um það í síðasta mánuði að Vestri hefði hafnað tveimur tilboðum frá Stjörnunni. Breiðablik hafði sömuleiðis áhuga á Benedikt og Valur var einnig sagt hafa áhuga.
Benedikt er 23 ára kantmaður sem var hjá Val fram í 3. flokk þegar hann skipti yfir í Breiðablik. Í meistaraflokki hefur hann leikið með Blikum, ÍA og Vestra. Á liðnu tímabili skoraði hann fimm mörk og lagði upp átta í Bestu deildinni og var einn af lykilmönnum Vestra sem hélt sér uppi í efstu deild.
FRÉTTIR04.12.2024, 14:27
Jóhannes Karl Bárðarson er alfarið genginn í raðir Þróttar Vogum en hann kemur frá Víkingi. Jóhannes Karl lék á láni með Þrótti seinni hluta tímabilsins 2023 og allt síðasta tímabili. Fyrri hluta tímabilsins 2023 var hann á láni hjá Ægi.
Hann er fæddur árið 2003 og er uppalinn hjá Víkingi. Hann hefur skorað fjögur mörk í 45 KSÍ leikjum.
FRÉTTIR04.12.2024, 12:32
Varnarmaðurinn Damir Muminovic hefur skrifað undir samning við fótboltafélagið DPMM í Brúnei en liðið spilar í úrvalsdeildinni í Singapúr og er í sjötta sæti af níu liðum.
Damir staðfestir þetta í <a href="https://www.mbl.is/sport/efstadeild/2024/12/04/damir_samdi_vid_asiska_felagid/" target="_blank">samtali við mbl.is</a>. Damir mun leika með liðinu frá áramótum og fram á næsta sumar.