Fotbolti.net
04.12.24 - 14:27
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Þróttur Vogum fær Jóhannes Karl alfarið frá Víkingi (Staðfest)

Marki gegn KFG fagnað í sumar.

Marki gegn KFG fagnað í sumar.

Canon

Mynd: Helgi Þór Gunnarsson

Jóhannes Karl Bárðarson er alfarið genginn í raðir Þróttar Vogum en hann kemur frá Víkingi. Jóhannes Karl lék á láni með Þrótti seinni hluta tímabilsins 2023 og allt síðasta tímabili. Fyrri hluta tímabilsins 2023 var hann á láni hjá Ægi.

Hann er fæddur árið 2003 og er uppalinn hjá Víkingi. Hann hefur skorað fjögur mörk í 45 KSÍ leikjum.
Í sumar skoraði miðjumaðurinn tvö mörk í 21 leik fyrir Þróttara sem enduðu í 3. sæti 2. deildar.

„Jói átti stórkostlegt sumar með okkur og hefur skrifað undir tveggja ára samning við stórveldið í Vogum," segir í tilkynningu félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.