Fotbolti.net
10.12.24 - 19:59
Brynjar Ingi Erluson

Rúrik Gunnars í HK (Staðfest)

Rúrik Gunnars í HK (Staðfest)
Canon

Mynd: HK

HK hefur samið við miðjumanninn Rúrik Gunnarsson en hann kemur til félagsins frá KR.
Rúrik, sem er 19 ára gamall, spilaði tólf leiki með KR í Bestu deildinni í sumar.

Á síðasta ári spilaði hann fyrstu leiki sína með KR áður en hann var lánaður í Aftureldingu. Þar lék hann fimm leiki í Lengjudeildinni áður en hann snéri aftur í KR.

Miðjumaðurinn er nú genginn í raðir HK frá KR en hann samdi til 2027.

Rúrik á 12 landsleiki að baki með yngri landsliðum Íslands.

HK féll úr Bestu deildinni í haust en liðið hafnaði í næst neðsta sæti með 25 stig, eins og Vestri, en Ísfirðingar héldu sæti sínu með betri markatölu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.