O'Shea kominn til Ipswich (Staðfest)
Ipswich Town er búið að staðfesta kaup á írska landsliðsmanninum Dara O'Shea sem kemur til félagsins úr röðum Burnley.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24408 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Ipswich Town er búið að staðfesta kaup á írska landsliðsmanninum Dara O'Shea sem kemur til félagsins úr röðum Burnley.
Nýliðar Ipswich Town hafa fest kaup á ensk vængmanninum Jack Clarke frá Sunderland en þetta kemur fram í tilkynningu frá félögunum í dag.
Franska félagið Marseille hefur staðfest kaupin á enska vængmanninum Jonathan Rowe en hann kemur til félagsins frá Norwich City.
Ganamaðurinn Jordan Ayew er mættur til Leicester City frá Crystal Palace fyrir fimm milljónir punda.
Spænski sóknarmaðurinn Samu Omorodion er genginn til liðs við portúgalska félagið Porto frá Atlético Madríd.
Spænski varnarmaðurinn Sergi Roberto hefur samið við ítalska félagið Como til næstu tveggja ára en hann kemur á frjálsri sölu frá Barcelona.
Sóknarmaðurinn El Bilal Toure er genginn til liðs við Stuttgart á láni frá Atalanta.
Danski landsliðsmiðvörðurinn Joachim Andersen er mættur til Fulham frá Crystal Palace fyrir 30 milljónir punda.
Íslandsvinurinn Asmir Begovic hefur gert samning við Everton út tímabilið. Honum er ætlað að vera varamarkvörður fyrir Jordan Pickford. Begovic heimsótti Ísland fyrr á árinu og hélt markvarðanámskeið í Úlfarsárdal.
Jóhann Berg Guðmundsson er genginn í raðir sádiarabíska liðsins Al-Orobah. Hann kemur til félagsins frá enska félaginu Burnley. Hann er keyptur til Sádi-Arabíu en Burnley gefur ekki upp kaupverðið. Í færslu Burnley er Jóhanni þakkað fyrir sín störf hjá Burnley og óskað velfarnaðar í framtíðinni. Þá er einnig sagt að 'JBG' verði alltaf í uppáhaldi hjá stuðningsmönnum félagsins. Jóhann Berg var í átta ár hjá Burnley en hann kom til félagsins frá Charlton sumarið 2016. Hann skoraði í kveðjuleik sínum með Burnley; skoraði fimmta mark liðsins gegn Cardiff um síðustu helgi, flott kveðjumark í uppbótartíma. Það var hans 200. deildarleikur með Burnley. Félagaskiptin hafa legið í loftinu frá því á mánudag þegar fyrst var fjallað um það. Skiptin koma talsvert á óvart því íslenski landsliðsmaðurinn skrifaði undir nýjan samning við Burnley í júlí eftir að hafa yfirgefið rúmum mánuði áður. Jóhann Berg er 33 ára, uppalinn hjá Breiðabliki og hefur sem atvinnumaður leikið með AZ Alkmaar, Charlton og Burnley. Hann á að baki 93 landsleiki og reynir nú fyrir sér í Sádi-Arabíu. Á <i>433</I> er sagt frá því að Jóhann skrifi undir eins árs samning við Al-Orobah sem er nýliði í úrvalsdeildinni í Sádi. Portúgalinn Alvaro Pacheco er þjálfari liðsins og á meðal leikmanna er Jean Michael Seri sem er fyrrum leikmaður Fulham og Hull.
Íslenska landsliðskonan Hildur Antonsdóttir er búin að finna sér nýtt félagslið. Hún hefur skrifað undir samning við spænska félagið Madrid CFF en eins og nafnið gefur til kynna, þá er félagið í spænsku höfuðborginni.
<i>„Allir vita hversu mikla virðingu ég ber fyrir Pep Guardiola. Hann er besti stjóri heims og þú verður betri leikmaður á því að vinna með honum á hverjum degi. Í hreinskilni sagt get ég ekki beðið eftir því að klæðast treyju Manchester City á ný,"</i> segir Ilkay Gundogan sem er formlega orðinn leikmaður Manchester City á nýjan leik. Þessi 33 ára þýski miðjumaður var fyrsti leikmaðurinn sem Guardiola keypti til City árið 2016. Hann hefur gert samning við City út þetta tímabil, með möguleika á ári til viðbótar. <i>„Þau sjö ár sem ég hef átt hjá Manchester City hafa verið tími hreinnar ánægju fyrir mig, bæði innan og utan vallar."</i> Gundogan var aðeins eitt tímabil hjá Barcelona sem rifti við hann til að losna við launakostnað hans. Gundogan lék 51 leik undir stjórn Xavi á síðasta tímabili. Eftir stjóraskipti og breyttar áherslur tilkynnti Hansi Flick leikmanninum reynda að hann gæti ekki búist við því að vera byrjunarliðsmaður. Þau sjö ár sem Gundogan á að baki með Manchester City vann hann fjórtán titla með liðinu.
<p>Írski framherjinn Michael Obafemi er genginn til liðs við Plymouth á láni frá Burnley út leiktíðina.</p>
<p>Sepp van den Berg er genginn til liðs við Brentford frá Liverpool en hann skrifar undir fimm ára samning.</p>
Abdeen Abdul, framherjinn sem lék með Dalvík/Reyni fyrri hluta tímabilsins, er búinn að finna sér nýtt félag. Samningi hans var rift fyrr í þessum mánuði og er hann búinn að semja við félag í Kósovó. Hann semur við FC Ferizaj sem komst upp í úrvalsdeildina í vor.
Liverpool hefur selt hinn nítján ára gamla Bobby Clark til austurríska félagsins RB Salzburg fyrir 10 milljónir punda. Stjóri RB Salzburg, Pep Lijnders, var aðstoðarmaður Jurgen Klopp hjá Liverpool og hefur miklar mætur á miðjumanninum Clark. Clark lék tólf leiki fyrir Liverpool á síðasta tímabili en pabbi hans var á sínum tíma lykilmaður hjá Newcastle, Lee Clark.
Norski miðjumaðurinn Sander Berge hefur gengið í raðir Fulham frá Burnley fyrir 25 milljónir punda. Hann skrifaði undir fimm ára samning, með möguleika á ári til viðbótar. Berge er 26 ára og gekk í raðir Burnley frá Sheffield United á síðasta ári. Hann var valinn leikmaður ársins hjá Burnley en liðið féll niður í Championship-deildina. <i>„Tilfinningin er frábær. Þetta hefur fram og til baka síðustu vikur en loksins sit ég hér í treyjunni á þessum fallega leikvangi. Nú veit ég að framtíð mín er hér og það er góð tilfinning,"</i> segir Berge. Hann er fjórði leikmaðurinn sem Fulham fær í glugganum en áður höfðu Emile Smith Rowe, Jorge Cuenca og Ryan Sessegnon gengið í raðir félagsins.
Jonathan Glenn þjálfari Keflavíkur í Bestu deild kvenna hefur verið leystur frá störfum. Þetta kemur fram í frétt Víkurfrétta frá í kvöld. Í fréttinni segir að á fundi stjórnar knattspyrnudeildar Keflavíkur í kvöld hafi verið tekin ákvörðun um að breytinga væri þörf og að samningur Glenn við félagið yrði ekki endurnýjaður. Einnig að ekki yrði óskað eftir frekara vinnuframlagi frá Glenn út samningstímann. <b>Uppfært 11:55 fimmtudag:</b> Keflavík hefur staðfest tíðindin.
Spænski vinstri bakvörðurinn Alex Moreno skrifaði í kvöld undir eins árs lánssamning hjá enska félaginu Nottingham Forest en hann kemur til félagsins frá Aston Villa.
Franski varnarmaðurinn Pierre Kalulu er mættur til Juventus á láni frá Milan.