Fotbolti.net
23.08.24 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Obafemi orðinn liðsfélagi Guðlaugs Victors (Staðfest)

Michael Obafemi

Michael Obafemi

Canon

Mynd: Getty Images

Írski framherjinn Michael Obafemi er genginn til liðs við Plymouth á láni frá Burnley út leiktíðina.

Obafemi er 24 ára gamall landsliðsmaður Írlands en hann hefur aðeins spilað tvo leiki fyrir Burnley síðan hann gekk til liðs við félagið frá Swansea síðasta sumar.

„Við erum í skýjunum að okkur tókst að fá Michael. Hann vildi mikið koma og vera hluti af því sem við erum að búa til. Hann er sá leikmaður sem við viljum í hópinn. Passar inn í leikstílinn," sagði Wayne Rooney, stjóri Plymouth.

Guðlaugur Victor Pálsson er leikmaður liðsins en Plymouth gerði 1-1 jafntefli gegn Hull í fyrstu umferð Championship deildarinnar um síðustu helgi. Guðlaugur Victor spilaði allan leikinn.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.