Fotbolti.net
21.08.24 - 18:48
Brynjar Ingi Erluson

Juventus fær Kalulu á láni frá Milan (Staðfest)

Juventus fær Kalulu á láni frá Milan (Staðfest)
Canon

Mynd: Juventus

Franski varnarmaðurinn Pierre Kalulu er mættur til Juventus á láni frá Milan.
Juventus náði á dögunum samkomulagi við Milan um að fá Kalulu á láni út tímabilið með möguleika á því að geta keypt hann.

Kalulu, sem er 24 ára gamall, lék aðeins níu deildarleiki með Milan á síðustu leiktíð, en vöðvameiðsli héldu honum frá vellinum stærstan hluta tímabilsins.

Varnarmaðurinn ólst upp hjá Lyon en var fenginn til Milan fyrir fjórum árum.

Tímabilið 2021/2022 var hann fastamaður í vörninni er liðið vann Seríu A.

Kalulu á að baki 26 landsleiki og 2 mörk fyrir yngri landslið Frakklands, en á enn eftir að spila fyrir A-landsliðið.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.