Gomes efstur á óskalista Newcastle - Liverpool hefur einnig áhuga - Rætt um að stækka HM kvenna
   lau 24. ágúst 2024 07:00
Brynjar Ingi Erluson
El Bilal Toure til Stuttgart (Staðfest)
Mynd: EPA
Sóknarmaðurinn El Bilal Toure er genginn til liðs við Stuttgart á láni frá Atalanta.

Atalanta keypti Toure frá Almería fyrir metfé á síðasta ári eða í kringum 30 milljónir evra.

Framherjanum tókst ekki að koma sér í fast hlutverk hjá Atalanta og lék aðeins ellefu deildarleiki ásamt því að skora tvö mörk á síðustu leiktíð.

Toure er nú mættur til Stuttgart á láni út tímabilið. Þýska félagið greiðir um 4 milljónir evra fyrir lánsdvöl kappans og á síðan möguleika á að gera skiptin varanlegt fyrir 16 milljónir.


Athugasemdir
banner
banner
banner