Gabriel kominn til Besiktas (Staðfest)
Brasilíski varnarmaðurinn Gabriel Paulista, sem lék með Arsenal í ensku úrvalsdeildinni frá 2015 til 2017, er genginn til liðs við tyrkneska stórveldið Besiktas.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24421 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Brasilíski varnarmaðurinn Gabriel Paulista, sem lék með Arsenal í ensku úrvalsdeildinni frá 2015 til 2017, er genginn til liðs við tyrkneska stórveldið Besiktas.
Þýska félagið Fortuna Düsseldorf hefur ákveðið að festa kaup á Ísaki Bergmanni Jóhannessyni sem lék með félaginu á láni á nýliðinni leiktíð.
<p>Adam Lallana hefur skrifað undir samning við Southampton. Hann gerir eins árs samning við félagið.</p>
Dortmund hefur tilkynnt að Nuri Sahin sé tekinn við sem aðalþjálfari liðsins. Hann tekur við eftir að Edin Terzic sagði nokkuð óvænt af sér í gær. Sahin er fyrrum leikmaður Dortmund og var þjálfari Antalyaspor á árunum 2021-23. Sahin er Tyrki en er fæddur í Þýskalandi og fékk sitt fótboltauppeldi þar. Sahin var aðstoðarþjálfari Dortmund seinni hluta síðasta tímabils.
Mats Hummels mun yfirgefa Borussia Dortmund í sumar þegar samningur hans við félagið rennur út. Dortmund staðfestir þetta í yfirlýsingu sinni í dag.
Þýskalandsmeistarar Bayer Leverkusen eru búnir að tryggja sér fyrstu kaup sumarsins.
Þýska félagið RB Leipzig er búið að festa kaup á afar efnilegum miðjumanni sem var gríðarlega eftirsóttur í fyrra, þegar öll stærstu lið Evrópu voru orðuð við hann.
Þýskalandsmeistarar Bayer Leverkusen eru búnir að staðfesta kaup á spænska miðjumanninum Aleix García, sem kemur úr röðum Girona fyrir um 20 milljónir evra.
Varnarmaðurinn Lloyd Kelly hefur skrifað undir fimm ára samning við Newcastle United en hann kemur til félagsins á frjálsri sölu frá Bournemouth. Hann kom til Bournemouth 2019, þegar Eddie Howe núverandi stjóri Newcastle var stjóri liðsins. Kelly getur spilað sem vinstri bakvörður eða miðvörður og kemur með fleiri möguleika varnarlega fyrir Newcastle. Félagið hafði reynt að fá Tosin Adarabioyo sem ákvað að ganga í raðir Chelsea frá Fulham. Kelly lék 25 leiki fyrir Bournemoth á síðasta tímabili og skoraði eitt mark, bikarmark gegn Swansea. <i>„Ég er hæstánægður með að hafa fengið Lloyd. Hann hefur sannað sig í deildinni og ég hef lengi hrifist að. Auk varnargetunnar þá býr hann yfir leiðtogahæfileikum,"</i> segir Howe við heimasíðu Newcastle.
Japanski landsliðsmaðurinn Hiroki Ito er genginn í raðir Bayern Munchen en félagið virkjaði riftunarákvæði í samningi Ito við Stuttgart og því gat Stuttgart ekki hafnað tilboðinu. Hann skrifar undir samning sem gildir fram á sumarið 2028. Ákvæðið er talið nema um 27 milljónum punda og vonast stjórnendur Bayern til að Ito muni leysa vandamálin í varnarleik félagsins. Bæjarar glímdu við gríðarlega mikil meiðslavandræði í varnarlínunni á síðustu leiktíð, en Ito getur bæði leikið sem miðvörður og vinstri bakvörður.
Brasilíski vængmaðurinn Luis Guilherme er genginn í raðir West Ham. Enska félagið kaupir hann frá brasilíska félaginu Palmeiras og skrifar kantmaðurinn undir fimm ára samning. West Ham greiðir 30 milljónir evra (25 milljónir punda) fyrir Guilherme sem er átján ára hægri kantmaður. Hann hefur einungis skorað eitt mark í 49 keppnisleikjum með Palmeiras. Hann á að baki leiki fyrir U16 og U20 ára landslið Brasilíu. Fleiri félög í ensku úrvalsdeildinni höfðu áhuga. Tim Steidten í stjórn West Ham flaug til Brasilíu í síðustu viku til að klára skiptin. Hann ræddi við Guilherme og fjölskyldu hans og náði að sannfæra þau um að þetta væri rétta skrefið.
Edin Terzic, sem hefur verið aðalþjálfari Dortmund, hefur yfirgefið félagið. Terzic er 41 árs Þjóðverji sem fór með Dortmund alla leið í úrslitaleik Meistaradeildarinnar þar sem liðið tapaði gegn Real Madrid. Dortmund endaði í fimmta sæti í þýsku deildinni og verður í Meistaradeildinni á næsta tímabili.
Paulo Fonseca var rétt í þessu kynntur sem nýr aðalþjálfari AC Milan.
Lazio er búið að staðfesta ráðningu á Marco Baroni sem nýjum þjálfara félagsins eftir að Igor Tudor hætti á dögunum.
Króatíska stórveldið Hajduk Split er búið að ráða ítalska þjálfarann Gennaro Ivan Gattuso sem aðalþjálfara hjá sér.
Franski miðjumaðurinn Mattéo Guendouzi er samningsbundinn Lazio næstu fjögur árin eftir að liðið endaði í efri hluta Serie A deildar ítalska boltans á nýliðinni leiktíð.
AC Monza er búið að staðfesta ráðningu á ítölsku goðsögninni Alessandro Nesta í þjálfarastöðuna hjá sér.
Juventus er búið að staðfesta ráðningu á Thiago Motta sem nýjum aðalþjálfara félagsins á þriggja ára samningi.
Úlfarnir hafa gengið frá kaupum á Rodrigo Gomes frá Braga fyrir tæplega 13 milljónir punda. Gomes er vængmaður sem verður 21 árs í júlí. Hann skrifaði undir samning við Wolves til 2029, með möguleika um framlengingu í ár til viðbótar, eftir að hann stóðst læknisskoðun.
Fernando Santos, fyrrum landsliðsþjálfari Portúgals, hefur verið ráðinn nýr landsliðsþjálfari Aserbaídsjan. Stærsta afrek Santos kom 2016 þegar hann stýrði portúgalska landsliðinu óvænt til sigurs á Evrópumótinu. Liðið vann heimamenn í Frakklandi í úrslitaleiknum, eftir að hafa gert jafntefli gegn Íslandi í riðlakeppni mótsins.