FRÉTTIR21.06.2024, 19:10
Kvennalið Barcelona er búið að ráða inn nýjan þjálfara til að taka við keflinu eftir að Jonatan Giráldez hætti störfum hjá félaginu til að taka við Washington Spirit í Bandaríkjunum. Sá heitir Pere Romeu og hefur starfað sem aðstoðarþjálfari Giráldez síðustu þrjú ár.
FRÉTTIR20.06.2024, 19:30
<i>Sýn</i> er búið að gera þriggja ára samning við ensku úrvalsdeildina um sýningarrétt á enska boltanum frá tímabilinu 2025/26 í þrjú ár til loka tímabilsins 2027/28.
FRÉTTIR20.06.2024, 10:36
Fótbolti.net hefur fengið það staðfest að búið sé að reka Gregg Ryder, þjálfara KR. Búist er við yfirlýsingu frá félaginu.
Illa hefur gengið hjá liðinu og eftir tap gegn ÍA á þriðjudag er það með ellefu stig, fjórum stigum fyrir ofan fallsæti.
Pálmi Rafn Pálmason, sem var hefur verið aðstoðarþjálfari Gregg hjá KR, mun stýra liðinu í leik liðsins á móti Víkingi næstkomandi laugardag.
FRÉTTIR20.06.2024, 09:37
Leicester City hefur ráðið Steve Cooper stjóra Nottingham Forest sem nýjan stjóra en hann hefur gert þriggja ára samning. Cooper er 44 ára og hefur verið án starfs síðan hann yfirgaf Forest í desember 2023.
Refirnir hafa verið í stjóraleit síðan Enzo Maresca yfirgaf félagið og tók við Chelsea í byrjun mánaðarins. Maresca tók við Leicester fyrir ári síðan og vann Championship-deildina.
Leicester er því mætt aftur í ensku úrvalsdeildina eftir eins árs fjarveru.
<i>„Ég er afskaplega spenntur og stoltur af því að vera ráðinn stjóri Leicester. Þetta er magnað félag með ríka sögu og ástríðufulla stuðningsmenn. Ég er spenntur fyrir því að vinna með svona hæfileikaríkum leikmannahópi,"</i> segir Cooper.
Stjórn Leicester varð vonsvikinn yfir því að Maresca ákvað að yfirgefa félagið eftir sigur liðsins í B-deildinni. Í Cooper fá þeir stjóra með úrvalsdeildarreynslu sem var feikilega vinsæll sem stjóri Forest en var látinn taka pokann sinn um mitt liðið tímabil.
Leicester tekur á móti Tottenham þann 19. ágúst, í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar.
FRÉTTIR19.06.2024, 10:54
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir hefur framlengt samning sinn við þýska félagið Bayern Munchen. Hún hefur verið þar frá árinu 2021 og hafa tækifærin með aðalliðinu verið af skornum skammti. Hún er nú samningsbundin fram á sumarið 2026.
Bayern er besta lið Þýskalands, liðið varð þýskur meistari annað árið í röð í vor og er samkeppnin mikil.
FRÉTTIR18.06.2024, 13:41
Magni Fannberg Magnússon hefur verið ráðinn til Norrköping sem íþróttaráðgjafi. Í tilkynningu sænska félagsins segir að hann komi inn sem hluti af stjórninni.
Magni var í vetur orðaður við Norrköping og nú er búið að ganga frá ráðningunni.
FRÉTTIR18.06.2024, 07:30
Spænska félagið Sevilla er búið að staðfesta félagaskipti Chidera Ejuke til félagsins eftir að samningur hans við CSKA Moskvu rann út.
FRÉTTIR18.06.2024, 06:00
Ítalska stórveldið Juventus er búið að selja brasilíska sóknarmanninn Kaio Jorge til Cruzeiro í Brasilíu. Cruzeiro borgar um 7,5 milljónir evra fyrir leikmanninn.
FRÉTTIR17.06.2024, 19:00
Spænski varnarjaxlinn Sergio Ramos er án félags eftir að honum mistókst að semja við Sevilla um nýjan samning.
FRÉTTIR17.06.2024, 18:40
Chadi Riad er orðinn nýr leikmaður Crystal Palace eftir að enska úrvalsdeildarfélagið borgaði um 15 milljónir evra til að kaupa hann.
FRÉTTIR17.06.2024, 17:30
Varnarmaður íslenska landsliðsins fékk gagnrýni, portúgalskur miðjumaður er orðaður við Liverpool og Óskar Hrafn hefur engan áhuga á að þjálfa meistaraflokks.
Hér að neðan má sjá lista yfir 20 vinsælustu fréttir Fótbolta.net í síðustu viku, raðað eftir hversu oft þær eru lesnar.
FRÉTTIR17.06.2024, 15:06
Guðmundur Þórarinsson, Gummi Tóta, hefur yfirgefið herbúðir gríska félagsins OFI Crete eftir tvö tímabil með liðinu. Samningur hans er að renna út og hann hafnaði nýjum samningi frá félaginu. Þetta staðfesti hann í <a href="https://tal.is/vigtin" target="_blank"><b><i>Þungavigtinni</I></b></a> í dag.
Landsliðsbakvörðurinn gekk í raðir félagsins sumarið 2022 eftir stutt stopp hjá Álaborg í Danmörku. Hann lék 57 deildarleiki með OFI, skoraði tvö mörk og lagði upp sjö mörk. Hann lék einnig fjóra bikarleiki og skoraði eitt mark.
FRÉTTIR17.06.2024, 09:40
Frakklandsmeistarar Paris Saint-Germain eru búnir að festa kaup á rússneska markverðinum Matvei Safonov, sem kemur til félagsins úr röðum Krasnodar í heimalandinu.
FRÉTTIR17.06.2024, 08:00
Girona var spútnik lið síðustu leiktíðar í spænsku deildinni og er þegar búið að krækja sér í einn leikmann í byrjun sumars.
FRÉTTIR16.06.2024, 20:11
AC Milan hefur staðfest félagaskipti belgíska sóknartengiliðsins Charles De Ketelaere til nágrannaliðsins Atalanta.
FRÉTTIR16.06.2024, 06:00
Kólumbíski markvörðurinn David Ospina er snúinn aftur til baka til Atlético Nacional í heimalandinu eftir 16 ára fjarveru.
FRÉTTIR15.06.2024, 16:29
Fabian Hürzeler hefur verið ráðinn sem nýr þjálfari Brighton og verður hann sá yngsti í sögu ensku úrvalsdeildarinnar.
FRÉTTIR15.06.2024, 10:55
Brasilíski varnarmaðurinn Gabriel Paulista, sem lék með Arsenal í ensku úrvalsdeildinni frá 2015 til 2017, er genginn til liðs við tyrkneska stórveldið Besiktas.
FRÉTTIR15.06.2024, 10:24
Þýska félagið Fortuna Düsseldorf hefur ákveðið að festa kaup á Ísaki Bergmanni Jóhannessyni sem lék með félaginu á láni á nýliðinni leiktíð.
FRÉTTIR15.06.2024, 06:00
<p>Adam Lallana hefur skrifað undir samning við Southampton. Hann gerir eins árs samning við félagið.</p>