Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24430 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR01.02.2024, 09:20

Átján ára Portúgali til Forest (Staðfest)

Nottingham Forest hefur fengið til sín Rodrigo Ribeiro, yngri landsliðsmann Portúgals, á láni frá Sporting Lissabon. Þessi átján ára leikmaður kemur til félagsins á láni út tímabilið með möguleika á því að Forest kaupi hann alfarið. Ribeiro kemur í gegnum unglingastarf Sporting og lék sinn fyrsta leik fyrir aðallið félagsins í Meistaradeildaradeildarleik gegn Manchester City í mars 2022. Hann skoraði sex mörk í níu leikjum þegar Sporting komst í undanúrslit í Evrópukeppni unglingaliða á síðasta tímabili.

FRÉTTIR31.01.2024, 17:30

Rúnar Gissurar snýr aftur til Keflavíkur (Staðfest)

Rúnar Gissurarson er mættur aftur til Keflavíkur eftir að hafa leikið með Þrótti Vogum seinni hluta síðasta tímabils. Rúnar skrifar undir samning sem gildir út komandi tímabil. Hann er 37 ára gamall og á að styðja við hinn efnilega Ásgeir Orra Magnússon sem lék sína fyrstu keppnisleiki á síðasta tímabili.

FRÉTTIR31.01.2024, 16:30

Sigurður Hrannar í Ægi (Staðfest)

Sigurður Hrannar Þorsteinsson er mættur til Ægis á láni frá ÍA. Hann mun spila með Ægi í 2. deildinni í sumar. Sigurður Hrannar lék í 2. deild í fyrra og skoraði þar tólf mörk í 21 leik með Vöslungi. Einungis þrír leikmenn skoruðu meira en hann í deildinni á síðasta tímabili. Hann er 23 ára sóknarmaður sem uppalinn er á Skaganum en hefur á ferli sínum einnig leikið með Kára og Gróttu, ásamt svo Völsungi í fyrra. Hann er samningsbundinn ÍA út komandi tímabil.

FRÉTTIR31.01.2024, 16:09

Málfríður og Sunneva til Danmerkur (Staðfest)

Tveir leikmenn úr Bestu deild kvenna hafa fengið félagaskipti til Danmerkur á síðustu dögum. Það eru þær Málfríður Anna Eiríksdóttir og Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir. Málfríður hefur leikið allan sinn feril með Val. Hún er í námi í Danmörku og mun spila með B93 út tímabilið í Danmörku. Það kom fyrst fram á <a href="https://www.mbl.is/sport/efstadeild/2024/01/30/islandsmeistarinn_til_danmerkur/" target="_blank"><b><i>mbl.is</I></b>.</a>

FRÉTTIR31.01.2024, 14:00

Aron Bjarki tekur slaginn áfram (Staðfest)

Aron Bjarki Jósepsson verður með Gróttu í sumar en þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net í dag. Aron, sem er 34 ára, var óvenjulega iðinn við kolann í markaskorun á síðasta tímabili en varnarmaðurinn skoraði fjögur mörk í 21 leik með Gróttu í Lengjudeildinni. Það gerði hann að þriðja markahæsta leikmanni liðsins. <i>„Það var smá spurning á tímabili, spáði í þessu eftir síðasta tímabil, maður veit aldrei hvað maður endist í þessu. En það er allt klárt, ég hef verið að æfa síðan í desember,"</I> segir Aron Bjarki.

FRÉTTIR31.01.2024, 12:30

Joey Gibbs heim til Ástralíu (Staðfest)

Framherjinn Joey Gibbs, sem leikið hefur á Íslandi undanfarin tímabil, er haldinn til síns heima í Ástralíu og hefur samið við Blacktown City FC þar í landi. Gibbs lék fyrst með Keflavík í þrjú tímabil áður en hann hélt í Garðabæinn á síðasta tímabili. Hjá Stjörnunni var Gibbs óheppinn með meiðsli en almenn ánægja var með hans störf þar og hefði Stjarnan viljað halda honum innan sinna raða, en Gibbs vildi heim til Ástralíu.

FRÉTTIR30.01.2024, 18:57

Hashioka semur við Luton (Staðfest)

Japanski landsliðsmaðurinn Daiki Hashioka skrifaði í dag undir samning við enska úrvalsdeildarfélagið Luton Town, en hann kemur til félagsins frá Sint-Truiden í Belgíu.

FRÉTTIR30.01.2024, 15:25

Angelino til Roma (Staðfest)

Roma hefur fengið vinstri bakvörðinn Angelino frá RB Leipzig en þessi 27 ára Spánverji hefur verið á láni hjá Galatasaray. Hann lenti í Ítalíu í gær til að gangast undir læknisskoðun.

FRÉTTIR30.01.2024, 13:30

Jana Sól í HK (Staðfest)

HK tilkynnti í dag að Jana Sól Valdimarsdótir væri búin að semja við félagið til tveggja ára. Jana verður 21 árs í næstu viku. Hún á að baki níu leiki fyrir yngri landsliðin en síðustu ár hafa einkennst af erfiðum meiðslum. Frá tímabilinu 2020 hefur Jana einungis komið við sögu í þremur KSÍ leikjum.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.