Fotbolti.net
30.01.24 - 18:52
Brynjar Ingi Erluson

Liverpool lánar Phillips til Cardiff (Staðfest)

Liverpool lánar Phillips til Cardiff (Staðfest)
Canon

Mynd: Cardiff City

Enski varnarmaðurinn Nat Phillips er kominn til Cardiff City á láni frá Liverpool, en þetta tilkynnti félagið í dag.
Phillips er 26 ára gamall miðvörður sem spilaði stóra rullu í vörn Liverpool tímabilið 2020-2021, þegar félagið var að ganga í gegnum erfið meiðsli og hjálpaði hann liðinu að komast alla leið í Meistaradeild Evrópu.

Englendingurinn fór á láni til Celtic fyrir þessa leiktíð en snéri aftur til Liverpool í byrjun mánaðarins.

Hann var nálægt því að fara til Blackburn Rovers á láni áður en Cardiff City kom inn í myndina og stal honum frá Jon Dahl Tomasson og félögum.

Cardiff tilkynnti komu hans á samfélagsmiðlum í dag en hann er nú orðinn nýr liðsfélagi Rúnars Alex Rúnarssonar. Cardiff er í 14. sæti ensku B-deildarinnar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.