Fotbolti.net
30.01.24 - 10:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Frosti Brynjólfs aftur í Hauka (Staðfest)

Frosti í leik með Haukum.

Frosti í leik með Haukum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét

Kantmaðurinn Frosti Brynjólfsson er aftur genginn í raðir Hauka eftir að hafa leikið með Fylki undanfarin tvö tímabil.
Frosti, sem er fæddur árið 2000, hjálpaði Fylki að komast upp úr Lengjudeildinni sumarið 2022 og svo spilaði hann 14 leiki með liðinu í Bestu deildinni á síðasta tímabili.

Hann lék afar vel með Haukum í 2. deild sumarið 2021 og skoraði þá átta mörk í 21 leik.

Frosti er uppalin hjá KA en hann hefur einnig spilað með Magna á Grenivík.

Haukar höfnuðu í sjöunda sæti 2. deildar á síðasta tímabili en Ian Jeffs tók við liðinu í vetur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.