Sarah Bouhaddi í Arsenal (Staðfest)

Sarah Bouhaddi.

Mynd: EPA

Sarah Bouhaddi.

Mynd: EPA

Franski markvörðurinn Sarah Bouhaddi hefur skrifað undir stuttan samning við Arsenal.
Hin 37 ára gamla Bouhaddi var án félags eftir að hafa spilað með Paris Saint-Germain á síðasta tímabili.
Bouhaddi var þar áður hjá Lyon í 13 ár þar sem hún raðaði inn titlum. Hún vann þar frönsku úrvalsdeildina ellefu sinnum, franska bikarinn átta sinnum og Meistaradeildina átta sinnum.
„Ég er hæstánægð að verða hluti af þessu frábæra félagi," segir Bouhaddi.
Bouhaddi, sem á 149 A-landsleiki fyrir Frakklands, kemur til með að fylla í skarðið fyrir Sabrina D'Angelo sem verður í landsliðsverkefni með Kanada í næsta mánuði. Manuela Zinsberger er aðalmarkvörður Arsenal.