Joey Gibbs heim til Ástralíu (Staðfest)

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Framherjinn Joey Gibbs, sem leikið hefur á Íslandi undanfarin tímabil, er haldinn til síns heima í Ástralíu og hefur samið við Blacktown City FC þar í landi.
Gibbs lék fyrst með Keflavík í þrjú tímabil áður en hann hélt í Garðabæinn á síðasta tímabili.
Hjá Stjörnunni var Gibbs óheppinn með meiðsli en almenn ánægja var með hans störf þar og hefði Stjarnan viljað halda honum innan sinna raða, en Gibbs vildi heim til Ástralíu.

TENGT EFNI
„Aldrei spurning um að hann myndi koma inn og setja mark sitt á þetta lið"
Gibbs er 31 árs og lék síðast með Blacktown City FC á árunum 2015-2020. Þaðan hélt hann til Keflavíkur og skoraði þar 21 mark í 19 leikjum í Lengjudeildinni. Tímabilið 2021 skoraði hann tíu mörk í Bestu deildinni og 2022 skoraði hann 5 mörk.
Á síðasta tímabili kom Gibbs við sögu í 16 deildarleikjum (byrjaði tvo leiki) með Stjörnunni og skoraði tvö mörk. Fyrra markið var ansi mikilvægt en það skoraði hann í lok leiks gegn ÍBV og kom Stjörnunni yfir í leiknum.
Gibbs fékk félagaskipti til Ástralíu í dag og hefst tímabilið þar þann 16. febrúar. Blacktown City FC spilar í næst efstu deild í Ástralíu.