Jana Sól í HK (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

HK tilkynnti í dag að Jana Sól Valdimarsdótir væri búin að semja við félagið til tveggja ára.
Jana verður 21 árs í næstu viku. Hún á að baki níu leiki fyrir yngri landsliðin en síðustu ár hafa einkennst af erfiðum meiðslum. Frá tímabilinu 2020 hefur Jana einungis komið við sögu í þremur KSÍ leikjum.

Hún er uppalin í Stjörnunni en fór í Val eftir tímabilið 2020. „Jana kemur til okkar frá Val en hún hefur verið óheppin með meiðsli síðustu ár. Endurhæfing hennar hefur gengið vel og nú styttist í að við fáum að sjá hana blómstra á vellinum," segir í tilkynningu HK.
HK endaði í 3. sæti Lengjudeildarinnar á síðasta tímabili.
HK endaði í 3. sæti Lengjudeildarinnar á síðasta tímabili.