Fotbolti.net
30.01.24 - 18:57
Brynjar Ingi Erluson

Hashioka semur við Luton (Staðfest)

Hashioka semur við Luton (Staðfest)
Canon

Mynd: Luton Town

Japanski landsliðsmaðurinn Daiki Hashioka skrifaði í dag undir samning við enska úrvalsdeildarfélagið Luton Town, en hann kemur til félagsins frá Sint-Truiden í Belgíu.
Hashioka er 24 ára gamall hægri bakvörður sem lék með Sint-Truiden frá 2022.

Áður lék hann með Urawa Reds í heimalandinu en hann þykir afar spennandi leikmaður.

Á dögunum komst Luton að samkomulagi við Sint-Truiden um kaup á Hashioka og fór hann í læknisskoðun í dag áður en hann skrifaði undir samning við félagið.

Kaupverðið er í kringum 2 milljónir punda og er nú beðið eftir að hann fái atvinnuleyfi á Englandi. Hann mun klæðast treyju númer 27.

Hashioka verður fyrsti Japaninn til að spila fyrir Luton Town.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.