Fotbolti.net
30.01.24 - 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Arek framlengir við KFA (Staðfest)

Arek framlengir við KFA (Staðfest)
Canon

Mynd: KFA

Arkadiusz Jan Grzelak, kallaður Arek, hefur skrifað undir eins árs framlenginu á samningi sínum hjá KFA.

Arek er uppalinn í Leikni en gekk til liðs við KFA frá Magna fyrir síðasta tímabil.

Hann spilaði 21 leik í 2. deild síðasta sumar þar sem KFA hafnaði í 3. sæti og var hársbreidd frá því að komast upp í Lengjudeildina.

„Arek var á dögunum kjörinn íþróttamaður Leiknis og einnig knattspyrnumaður Leiknis en á myndinni hér að neðan má sjá þennan bikaróða Fáskrúðsfirðing með viðurkenningarnar. 

Stjórn KFA er stolt af því að geta haldið heimamönnum hjá félaginu, enda liðið byggt upp á heimamönnum, og hlakkar til komandi sumars með Arek," segir í tilkynningu frá félaginu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.