Daniel Munoz til Crystal Palace (Staðfest)

Daniel Munoz.

Mynd: Crystal Palace

Daniel Munoz.

Mynd: Crystal Palace
Crystal Palace hefur gengið frá kaupum á kólumbíska hægri bakverðinum Daniel Munoz en hann kemur til félagsins frá Genk í Belgíu.
Hann skrifar undir samning við Palace sem gildir til ársins 2027 og er möguleiki á framlengingu um eitt ár.
Kaupverðið er í kringum 8,5 milljónir punda.
Munoz er 27 ára gamall en hann hefur leikið með Genk frá 2020. Þar lék hann með Atlético Nacional og Águilas Doradas í heimalandinu. Hann á að baki 22 A-landsleiki fyrir Kólumbíu.
Palace er sem stendur í 15. sæti ensku úrvalsdeildarinnar en Munoz gæti hugsanlega spilað sinn fyrsta leik fyrir félagið í erkifjendaslag gegn Brighton á laugardag.