Fotbolti.net
30.01.24 - 17:49
Brynjar Ingi Erluson

Orri Steinn fær nýjan liðsfélaga frá Nottingham Forest (Staðfest)

Scott Mckenna

Scott Mckenna

Canon

Mynd: FCK

Skoski varnarmaðurinn Scott Mckenna er mættur til danska félagsins FCK á láni frá Nottingham Forest.
Mckenna er 27 ára gamall miðvörður sem á 106 leiki að baki fyrir Forest.

Hann missti af stórum hluta síðasta tímabil en hann viðbeinsbrotnaði og var að glíma við meiðsli aftan í læri.

Á þessu tímabili hefur hann aðeins komið við sögu í fimm deildarleikjum með Forest, en hann er nú farinn frá félaginu á láni til FCK í Danmörku.

FCK staðfesti félagaskiptin í dag og verður hann því nýr liðsfélagi Orra Steins Óskarssonar.

Mckenna á 30 A-landsleiki fyrir Skotland og hefur skorað tvö mörk.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.