Afturelding fær bandarískan markvörð (Staðfest)

Afturelding hefur samið við Elaina LaMacchia um að spila með liðinu á komandi leiktíð en hún er bandarískur markvörður. Þetta staðfesti félagið í dag.

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25149 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Afturelding hefur samið við Elaina LaMacchia um að spila með liðinu á komandi leiktíð en hún er bandarískur markvörður. Þetta staðfesti félagið í dag.

Gríski varnarmaðurinn Kostas Manolas er genginn til liðs við Salernitana á frjálsri sölu en samningur hans gildir út tímabilið.
Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir heldur áfram að styrkja sig fyrir komandi tímabil en bandaríski framherjinn Sammy Smith er komin til félagsins úr bandaríska háskólaboltanum.
Diego Costa, fyrrum leikmaður Chelsea og Atlético Madríd, er genginn til liðs við Gremio í Brasilíu.
Blackburn Rovers tók sér ekki langan tíma í að finna eftirmann Jon Dahl Tomasson en enski þjálfarinn John Eustace hefur verið ráðinn til félagsins. Þetta kemur fram í tilkynningu Blackburn í dag.
Jon Dahl Tomasson og Blackburn Rovers hafa náð samkomulagi um að hann láti af störfum sem stjóri félagsins en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í dag.
Bournemouth hefur gengið frá kaupum á Luis Sinisterra sem leikið hefur með liðinu á láni frá Leeds í vetur. Bournemouth greiðir Leeds 20 milljónir punda fyrir Kólumbíumanninn.
Málfríður Erna Sigurðardóttir er gengin í raðir Íslandsmeistra Vals og mun leika með liðinu á komandi tímabili í Bestu deildinni. Hún kemur til Vals eftir að hafa leikið með Stjörnunni síðustu þrjú tímabilin. Málfríður sem verður fertug á árinu er uppalin í Val en hefur einnig leikið með Breiðablik og Stjörnunni. Málfríður hefur leikið 300 leiki í efstu deild á Íslandi og kemur til okkar úr Garðabænum.
Eric Vales hefur fengið leikheimild með Grindavík og er hann þriðji erlendi leikmaðurinn sem genginn er í raðir félagsins á síðustu dögum. Fótbolti.net greindi frá þremur leikmönnum sem voru á leið til félagsins fyrir rúmri viku síðan og er Vales þriðji leikmaðurinn í þeim hópi.
Ari Steinn Guðmundsson er mættur aftur til Keflavíkur eftir eitt og hálft ár hjá Víði. Ari skrifar undir tveggja ára samning við Keflavík sem spilar í Lengjudeildinni í sumar. Ari er 27 ára og getur bæði spilað á kantinum eða í holunni.

Víðir hefur nælt í fjóra nýja leikmenn fyrir átökin í þriðju deildinni í sumar.

Sindri Þór Guðmundsson er genginn til liðs við Reyni Sandgerði en hann gerir tveggja ára samning við félagið.

Reynir hefur verið að bæta við leikmannahópinn sinn en í gær tilkynnti félagið komu Alexanders Helgasonar og Hubert Kotus.

Muhamed Alghoul, sem gekk í raðir Keflavíkur síðasta sumar, hefur fengið félagaskipti til Króatíu. Alghoul er 27 ára sóknarsinnaður miðjumaður sem skoraði eitt mark í átta leikjum með Keflavík í fyrra. Hann er genginn í raðir NK Jarun sem spilar í næst efstu deild í Króatíu. Þar hittir hann fyrir yngri bróður sinn Halid Alghoul.
ÍBV hefur ráðið Jón Ólaf Daníelsson til starfa hjá félaginu og mun samningurinn ná til fimm ára.
Miðjumennirnir Alexander Helgason og Hubert Kotus hafa báðir skrifað undir samning þess efnis um að leika með Reyni Sandgerði næstu tvö tímabilin. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er Sindri Þór Guðmundsson einnig á leiðinni í Reyni.
Susanna Joy Friedrichs er mætt aftur í Bestu deildina en hún hefur skrifað undir samning við Keflavík fyrir næsta tímabil.
Víðir Þorvarðarson hefur fengið leikheimild með ÍBV og ætlar að spila með liðinu í Lengjubikarnum um hlegina. Víðir lék síðast með ÍBV tímabilið 2020 en samningi hans var rift eftir það tímabil. „Ég fékk aldrei útskýringar. Það var tekin ákvörðun af stjórn ÍBV um að rifta við mig samningi. Síðan þá hef ég ekki talað við þá menn," sagði Víðir í samtali við Fótbolta.net sumarið 2021. Hann lék með KFS 2021 og 2022 en lék ekkert 2023.
Þróttur í Reykjavík hefur gengið frá samningum við tvo leikmenn sem koma til félagsins frá Selfossi. Það eru þær Kristrún Rut Antonsdóttir og Íris Una Þórðardóttir. Báðar skrifa þær út samning sem gildir út tímabilið 2025.

Fjölnir hefur samið við þrjá nýja leikmenn fyrir átökin í 2. deild kvenna næsta sumar.

Díana Ásta Guðmundsdóttir er gengin til liðs við Gróttu en hún gerir tveggja ára samning við félagið.