Fotbolti.net
08.02.24 - 15:26
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Jón Óli tekur við kvennaliði ÍBV og fer í teymið hjá karlaliðinu (Staðfest)

Jón Óli Daníelsson.

Jón Óli Daníelsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
ÍBV hefur ráðið Jón Ólaf Daníelsson til starfa hjá félaginu og mun samningurinn ná til fimm ára.
Jón Óli mun taka við þjálfun meistaraflokks kvenna ásamt því að vera í þjálfarateymi Hermanns Hreiðarssonar í meistaraflokki karla. Þá hefur unglingaráð ÍBV einnig gert samning við Jón Óla um yfirþjálfun yngri flokka félagsins í fótbolta.

Jón Óli er öllum hnútum kunnugur hjá félaginu en hann þjálfaði meistaraflokk kvenna frá 2007 til 2014 og svo aftur 2019 ásamt því að hafa verið yfirþjálfari félagsins.

„Við bjóðum Jón Óla velkominn til starfa og óskum honum velfarnaðar í starfi," segir í tilkynningu ÍBV.

Bæði karla- og kvennalið ÍBV féllu niður í Lengjudeildina í fyrra og spila þar í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.