Fotbolti.net
08.02.24 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Grótta fær Díönu Ástu frá Augnabliki (Staðfest)

Grótta fær Díönu Ástu frá Augnabliki (Staðfest)
Canon

Mynd: Grótta

Hertz

Díana Ásta Guðmundsdóttir er gengin til liðs við Gróttu en hún gerir tveggja ára samning við félagið.

Díana er fædd árið 2006 en hún kemur til liðsins frá Augnablik en hún lék 18 leiki og skoraði tvö mörk með Kópavogsliðinu í Lengjudeildinni síðasta sumar.

Hún hefur verið hjá Augnablik undanfarin þrjú ár og spilað 46 leiki og skorað átta mörk.

„Díana er spennandi sóknarsinnaður leikmaður sem er kominn með fína reynslu í Lengjudeildinni. Hún verður frábær viðbót við góðan leikmannahóp Gróttu," sagði Matthías Guðmundsson þjálfari Gróttu.

Grótta hafnaði í 4. sæti í Lengjudeildinni síðasta sumar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.