Fotbolti.net
09.02.24 - 19:12
Brynjar Ingi Erluson

Eustace nýr stjóri Arnórs (Staðfest)

Eustace nýr stjóri Arnórs (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Blackburn Rovers tók sér ekki langan tíma í að finna eftirmann Jon Dahl Tomasson en enski þjálfarinn John Eustace hefur verið ráðinn til félagsins. Þetta kemur fram í tilkynningu Blackburn í dag.
Tomasson lagði fram beiðni um að hætta með liðið í annað sinn á tímabilinu en hann var óánægður með hvernig staðið var að leikmannamálum félagsins.

Enskir miðlar fullyrtu að John Eustace myndi taka við liðinu og reyndist það rétt.

Eustace stýrði Birmingham City á síðustu leiktíð en áður var hann aðstoðarþjálfari QPR og írska landsliðsins.

Hann skrifaði í dag undir tveggja og hálfs árs samning við Blackburn Rovers.

Blackburn var nálægt því að komast í umspilið í Championship á síðasta tímabili en liðið er núna í 18. sæti deildarinnar. Arnór Sigurðsson er á meðal leikmanna Blackburn.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.