Fotbolti.net
09.02.24 - 17:44
Brynjar Ingi Erluson

Jon Dahl hættur með Blackburn (Staðfest)

Jon Dahl Tomasson er hættur með Blackburn

Jon Dahl Tomasson er hættur með Blackburn

Canon

Mynd: Getty Images

Jon Dahl Tomasson og Blackburn Rovers hafa náð samkomulagi um að hann láti af störfum sem stjóri félagsins en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í dag.
Jon Dahl Tomasson tekur við Svíþjóð og Eustace við Blackburn
TENGT EFNI

Jon Dahl Tomasson tekur við Svíþjóð og Eustace við Blackburn

Tomasson, sem á ætti að rekja til Íslands, skrifaði undir þriggja ára samning við Blackburn árið 2022 en hann hefur tvisvar á undanförnum mánuðum boðist til að hætta með liðið. Hann hefur ekki verið nægilega ánægður með það hvernig staðið hefur verið að leikmannamálum félagsins

Blackburn hefur nú samþykkt beiðni hans og er Tomasson nú horfinn á braut. Remy Reijnierse, aðstoðarmaður Tomasson, er einnig hættur, en talið er líklegt að þeir séu að taka við sænska karlalandsliðinu.

John Eustace, fyrrum stjóri Birmingham, er talinn líklegastur til að taka við Blackburn.

Íslenski landsliðsmaðurinn Arnór Sigurðsson er á mála hjá Blackburn. Hann var lánaður til félagsins síðasta sumar og gekk alfarið frá félagaskiptum sínum frá CSKA Moskvu undir lok síðasta árs.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.