Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   fim 08. febrúar 2024 10:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Íris Una og Kristrún Rut í Þrótt (Staðfest)
Kvenaboltinn
Kristrún Rut Antonsdóttir.
Kristrún Rut Antonsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þróttur í Reykjavík hefur gengið frá samningum við tvo leikmenn sem koma til félagsins frá Selfossi.

Það eru þær Kristrún Rut Antonsdóttir og Íris Una Þórðardóttir. Báðar skrifa þær út samning sem gildir út tímabilið 2025.

Kristrún er 29 ára gömul og spilar sem miðjumaður. Hún spilaði síðast 15 leiki í deild og bikar með Selfossi en hún hefur allan sinn feril hér heima leikið með Selfossi.

Kristrún hefur á ferli sínum einnig leikið víða erlendis en hún var hjá Chieti og Roma á Ítalíu, Avaldsnes í Noregi, BSF í Danmörku, Mallbackens í Svíþjóð og St. Pölten í Austurríki áður en hún sneri aftur heim sumarið 2021.

Íris Una er 22 ára gömul og spilar aðallega sem bakvörður. Hún er uppalin í Keflavík og steig sín fyrstu skref í meistaraflokki þar en svo fór hún til Fylkis fyrir sumarið 2020. Hún hefur undanfarin tvö ár leikið svo með Selfossi.

Selfoss féll úr Bestu deildinni í sumar en þær tvær verða báðar áfram í Bestu deildinni. Ólafur Kristjánsson tók við liði Þróttar í vetur og verður fróðlegt að sjá hvernig honum vegnar með liðið í sumar.
Athugasemdir
banner
banner