Alexander og Hubert í Reyni Sandgerði (Staðfest)

Hubert Kotus.

Mynd: Guðmann Rúnar og Jóna Kristbjörg

Hubert Kotus.

Mynd: Guðmann Rúnar og Jóna Kristbjörg
Miðjumennirnir Alexander Helgason og Hubert Kotus hafa báðir skrifað undir samning þess efnis um að leika með Reyni Sandgerði næstu tvö tímabilin.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er Sindri Þór Guðmundsson einnig á leiðinni í Reyni.

Hubert kemur til liðsins frá KFK en hann var lykilmaður liðsins sem tryggði sig upp um deild á síðasta tímabili. Hubert, sem er frá Póllandi, hefur leikið 68 leiki hér á landi með KFK og Þrótti Vogum og skorað í þeim 25 mörk.
Alexander lék síðast með Þrótti Vogum í Lengjudeild árið 2022 en á að baki 157 leiki í meistaraflokki og hefur skorað í þeim 35 mörk. Auk Þróttar hefur Alexander leikið með Haukum og Njarðvík.
„Stjórn knattspyrnudeildar Reynis býður þá Alexander og Hubert hjartanlega velkomna og hlakkar til að sjá þá á komandi tímabili," segir í tilkynningu Sandgerðinga.
Reynir fór með sigur af hólmi í 3. deild karla á síðasta ári og leikur í 2. deild í sumar.