Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   fim 08. febrúar 2024 11:21
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Víðir snýr aftur í ÍBV (Staðfest) - „Maður hefur saknað þess"
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víðir Þorvarðarson hefur fengið leikheimild með ÍBV og ætlar að spila með liðinu í Lengjubikarnum um hlegina.

Víðir lék síðast með ÍBV tímabilið 2020 en samningi hans var rift eftir það tímabil. „Ég fékk aldrei útskýringar. Það var tekin ákvörðun af stjórn ÍBV um að rifta við mig samningi. Síðan þá hef ég ekki talað við þá menn," sagði Víðir í samtali við Fótbolta.net sumarið 2021.

Hann lék með KFS 2021 og 2022 en lék ekkert 2023.

Fótbolti.net ræddi við Víði í dag.

„Það er alveg líklegt að ég spili með þeim í sumar, það er allavega Lengjubikar núna á laugardag," sagði Víðir.

„Standið er allt að koma, maður hefur haldið sér ágætlega við. Ég er búinn að æfa með þeim síðan í desember, búinn að hlaupa mig í fínt stand."

Hvernig er tilhugsunin að fara aftur í ÍBV treyjuna?

„Hún er mjög góð. Maður hefur saknað þess að vera í bolta og í kringum boltann. Það er búið að vera gaman að mæta á æfingar. Allt jákvætt."

Hvernig kemur til að þú sért að snúa til baka? Heyrði Hemmi í þér?

„Hemmi er búinn að vera lengi á bakinu á manni, allan þennan tíma sem ég hef verið í burtu. Strákarnir líka, samfélagið hér í Eyjum er svo lítið, þetta eru vinir manns og maður er alltaf í kringum í þessa peyja," sagði Víðir.

Víðir er 31 árs sóknarmaður sem bæði hefur spilað í fremstu línu og á kantinum. Hann er Eyjamaður sem á einnig tímabil með Stjörnunni, Fylki og Þrótti. Hann hefur skorað 22 mörk í 140 leikjum í efstu deild, 4 mörk í 47 leikjum í næst efstu deild og 13 mörk í 29 bikarleikjum.

ÍBV á leik gegn Val í Egilshöll á laugardag. Það er fyrsti leikur liðsins í riðli 2 í Lengjubikarnum. ÍBV féll úr Bestu deildinni síðasta sumar og verður því í Lengjudeildinni á komandi tímabili.
Athugasemdir
banner
banner