Frá Keflavík til bróður síns í Króatíu (Staðfest)


Mynd: NK Dubrava


Mynd: NK Dubrava
Muhamed Alghoul, sem gekk í raðir Keflavíkur síðasta sumar, hefur fengið félagaskipti til Króatíu. Alghoul er 27 ára sóknarsinnaður miðjumaður sem skoraði eitt mark í átta leikjum með Keflavík í fyrra.
Hann er genginn í raðir NK Jarun sem spilar í næst efstu deild í Króatíu. Þar hittir hann fyrir yngri bróður sinn Halid Alghoul.
Hann er genginn í raðir NK Jarun sem spilar í næst efstu deild í Króatíu. Þar hittir hann fyrir yngri bróður sinn Halid Alghoul.

TENGT EFNI
Keflavík fær króatískan Palestínumann (Staðfest)
Fimm leikir eru eftir af deildinni í Króatíu og er lítið fyrir Jarun að spila, liðið er um miðja deild, níu stigum frá fallsæti og 21 stigi frá toppliðinu.
Bræðurnir eru fæddir í Zagreb og eru bæði með króatískan og palestínskan ríkisborgararétt.
Bræðurnir eru fæddir í Zagreb og eru bæði með króatískan og palestínskan ríkisborgararétt.



