Fotbolti.net
09.02.24 - 14:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Málfríður Erna tekur síðasta dansinn með Val (Staðfest)

24. tímabilið framundan.

24. tímabilið framundan.

Canon

Mynd: Valur

Hertz
Málfríður Erna Sigurðardóttir er gengin í raðir Íslandsmeistra Vals og mun leika með liðinu á komandi tímabili í Bestu deildinni. Hún kemur til Vals eftir að hafa leikið með Stjörnunni síðustu þrjú tímabilin.

Málfríður sem verður fertug á árinu er uppalin í Val en hefur einnig leikið með Breiðablik og Stjörnunni. Málfríður hefur leikið 300 leiki í efstu deild á Íslandi og kemur til okkar úr Garðabænum.
Í tilkynningu Vals útskýrir Málfríður hvers vegna hún er komin aftur í Val.

„Ég var á krossgötum eftir síðasta tímabil hvað ég ætti að gera en þegar ég fékk símtalið frá Val kom tækifæri til að klára ferilinn með mínu uppeldisfélagi sem mér hefur alltaf dreymt um þannig ákvörðunin um að koma aftur í Val var frekar auðveld fyrir mig."

Málfríður er á leið í sitt 24. tímabil í meistaraflokki. Fyrsta leikinn lék hún árið 2000 gegn ÍBV.

Þetta verður síðasti dans Fríðu í sumar því hún ætlar að leggja skóna góðu fallega frá sér upp í hillu að tímabili loknu. Það staðfestir hún í tilkynningu Val. Hún hefur háleit markmið fyrir tímabilið.

„Auðvitað vil ég spila sem flesta leiki en ég tek því hlutverki sem þjálfarinn setur mér fegins hendi. Hvort sem það er að vera í byrjunarliðinu eða vera á bekknum og koma inn á mun ég gefa 100% í hvert verkefni. Ég hef líka reynslu sem ég get miðlað til yngri leikmanna og hjálpað liðinu til að ná markmiðum sínum."

„Það er mikil ánægja á heimilinu með þessa ákvörðun þar sem ég á tvær dætur og einn son sem æfa öll bæði handbolta og fótbolta hjá félaginu. Ég er hins vegar fyrst og fremst auðvitað að gera þetta fyrir sjálfa mig en það skemmir ekki fyrir að börnin séu með mér á Hlíðarenda alla daga,"
sagði Málfríður.

Í leik með Stjörnunni síðasta sumar.

Í leik með Stjörnunni síðasta sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.