Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   fim 08. febrúar 2024 12:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Susanna Friedrichs mætt aftur í Bestu deildina (Staðfest)
Kvenaboltinn
Susanna Joy Friedrichs.
Susanna Joy Friedrichs.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Susanna Joy Friedrichs er mætt aftur í Bestu deildina en hún hefur skrifað undir samning við Keflavík fyrir næsta tímabil.

Friedrichs er 25 ára gömul og spilar sem varnarmaður. Hún er frá Bandaríkjunum og lék þar í háskólaboltanum með VCU Rams í Virginia.

Hún steig sín fyrstu skref í atvinnumennsku í Tékklandi en skipti svo yfir í Selfos sumarið 2021. Hún lék einnig á Selfoss svo sumarið eftir.

Hún fór svo til Houston Dash í bandarísku atvinnumannadeildinni en spilaði lítið þar. Síðast lék hún með Napoli í ítölsku úrvalsdeildinni.

Keflavík endaði í áttunda sæti Bestu deildarinnar á síðustu leiktíð en þetta er svo sannarlega góður liðsstyrkur fyrir liðið.
Athugasemdir
banner
banner