Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   fim 08. febrúar 2024 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Fjölnir krækir í þrjá leikmenn (Staðfest) - Fjórir lykilmenn framlengja
Kvenaboltinn
Hrafnhildur Árnadóttir
Hrafnhildur Árnadóttir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fjölnir hefur samið við þrjá nýja leikmenn fyrir átökin í 2. deild kvenna næsta sumar.


Emilía Lind Atladóttir kemur frá Augnablik en hún skoraði 4 mörk í 11 leikjum í Lengjudeildinni síðasta sumar.

Hanna Faith Victoriudóttir kemur frá FH en hún spilaði þrjá leiki í Lengjudeildinni sumarið 2021 áður en hún meiddist illa. Hún kom til baka síðasta sumar og lék sjö leiki með ÍH í 2. deild.

Þá er Kristín Gyða Davíðsdóttir einnig mætt í Fjölnis treyjuna frá Fram þar sem hún hefur leikið undanfarin fjögur ár en hún hóf meistaraflokk feril sinn hjá Aftureldingu.

Hrafnhildur Árnadóttir, Marta Björgvinsdóttir, Anna María Bergþórsdóttir og María Eir Magnúsdóttir hafa framlengt samninga sína við félagið út árið.

Flestar hafa þær spilað um og yfir 100 leiki fyrir félagið en Anna María gekk til liðs við félagið frá Selfossi árið 2022 en hún lék 19 leiki á síðustu leiktíð og skoraði sjö mörk.


Athugasemdir
banner
banner