Fotbolti.net
09.02.24 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Fjórir leikmenn í Víði (Staðfest)

Fjórir leikmenn í Víði (Staðfest)
Canon

Mynd: Víðir

Víðir hefur nælt í fjóra nýja leikmenn fyrir átökin í þriðju deildinni í sumar.

Tveir koma úr Reykjanesbæ. Magnús Þór Ólason er miðjumaður sem hefur leikið upp alla yngriflokkana hjá Keflavík. Jón Garðar Arnarsson er 18 ára markvörður sem er uppalinn hjá Njarðvík.

Þá eru tveir erlendir leikmenn sem bætast í hópinn.

Ricardo Carvalho er þrítugur brasilískur varnarmaður og Abde Achmimou er 26 ára gamall spænskur miðjumaður.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.