Ásgeir Frank leggur skóna á hilluna - Tekur við Hvíta riddaranum (Staðfest)
<p>Ásgeir Frank Ásgeirsson hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna en hann hefur verið ráðinn þjálfari Hvíta riddarans sem leikur í 3. deild í sumar.</p>
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25149 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
<p>Ásgeir Frank Ásgeirsson hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna en hann hefur verið ráðinn þjálfari Hvíta riddarans sem leikur í 3. deild í sumar.</p>
<p>Hinn 38 ára gamli Arnór Sveinn Aðalsteinsson hefur gert nýjan eins árs samning við Breiðablik.</p>
Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir hefur gengið frá samningi við írska markvörðinn Keelan Terrell og mun hún spila fyrir félagið í Lengjudeild kvenna í sumar.
Grindavík hefur fengið Hrannar Inga Magnússon á láni frá frá Íslands- og bikarmeisturum Víkings.
Tindastóll hefur landað ansi öflugum bita því Laufey Harpa Halldórsdóttir mun spila með liðinu í sumar. Laufey er bakvörður sem uppalin er hjá Tindastóli en skipti í Breiðablik fyrir tímabilið 2022. Hún lék með Tindastóli í fyrra á láni og skiptir nú alfarið.
Jesse Lingard, fyrrum leikmaður Manchester United, hefur skrifað undir tveggja ára samning við FC Seoul í Suður-Kóreu. Möguleiki er á árs framlengingu á samningnum. Lingard, sem er 31 árs Englendingur, hefur verið án félags síðan síðasta sumar þegar samningur hans við Nottingham Forest rann út.
Dalvík/Reynir tilkynnti í dag um komu Freys Jónssonar til félagsins en hann kemur frá Grindavík. Freyr er 23 ára leikmaður sem getur bæði spilað í varnarlínunni og á miðjunni. Hann þekkir vel til fyrir norðan því hann lék um árabil með KA í yngri flokkum.
Fylkir hefur fengið Hilmar Þór Kjærnested Helgason í sínar raðir frá Breiðabliki. Hann er annar efnilegi markvörðurinn sem yfirgefur Breiðablik á síðustu dögum en í gær fékk nafni hans Hilmar Karlsson félagaskipti í Val.
FH kveður Eggert Gunnþór Jónsson á samfélagsmiðlum sínum í dag en hann heldur heim og verður spilandi aðstoðarþjálfari hjá KFA, Knattspyrnufélagi Austfjarða, í 2. deildinni. <i>„Við þökkum honum innilega fyrir þessi þrjú ár hjá okkur og óskum honum góðs gengis í komandi verkefnum,"</i> segir á miðlum FH.
Valur hefur gengið frá þriggja ára samning við unglingalandsliðsmarkvörðinn Hilmar Karlsson en hann kemur frá Breiðabliki.
Gísli Eyjólfsson var í dag kynntur sem nýr leikmaður Halmstad. Sænska félagið kaupir hann af Breiðabliki. Halmstad greinir frá komu Gísla á samfélagsmiðlum en þar kemur ekki fram samningslengd. Ólafur Garðarsson, umboðsmaður Gísla, staðfesti við Fótbolta.net að um þriggja ára samning væri að ræða. Gísli, sem er 29 ára miðjumaður, skrifar undir ára samning. Hann er annar leikmaðurinn sem Halmstad fær frá Íslandi í vetur því í síðasta mánuði fékk liðið Birni Snæ Ingason, besta leikmann Bestu deildarinnar 2023, í sínar raðir frá Víkingi.
Ástralski sóknarmaðurinn Jordan Smylie hefur skrifað undir samning við ástralska félagið Dandenong Thunder SC. Smylie kom til Keflavíkur í fyrra og lék fyrri hluta tímabilsins með liðinu í Bestu deildinni. Hann náði ekki að heilla og var lánaður til Hauka seinni hlutann.
Slóvenski kantmaðurinn Matevz Turkus er genginn í raðir Grindavíkur og mun spila fyrir félagið í sumar. Turkus er 24 ára Slóveni sem var fyrirliði NK Fuzinar á síðasta tímabili. Hann er hægri kantmaður sem á leiki fyrir unglingalandslið Slóveníu. Á ferli sínum hefur hann einnig spilað í Austurríki. Hann varð slóvenskur bikarmeistari árið 2018 með uppeldisfélaginu Olimpija Ljubljana.
Þór/KA hefur samið við tvær knattspyrnukonur sem munu leika með liðinu í Bestu deildinni á komandi sumri.
Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir hefur nælt sér í tvo leikmenn fyrir komandi tímabil en báðar koma frá Bandaríkjunum.
Víðir í Garði hefur styrkt leikmannahóp sinn fyrir komandi átök en Markús Máni Jónsson er kominn til félagsins frá Árbæ.
Enski varnarmaðurinn Joe Worrall er mættur til Besiktas á láni frá Nottingham Forest út tímabilið.
Velski þjálfarinn Nathan Jones var í gær ráðinn nýr stjóri Charlton Athletic í ensku C-deildinni.
Ivo Braz, sem kom til Íslands fyrir síðasta tímabil og lék með Ægi og Aftureldingu, hefur fengið félagaskipti til AD Fafe í Portúgal. Braz er portúgalskur sóknarsinnaður miðjumaður sem átti mjög gott tímabil í Lengjudeildinni í fyrra.
Steinþór Freyr Þorsteinsson er búinn að skrifa undir eins árs samning við Völsung og mun leika með liðinu í 2. deild. Hann kemur til félagsins frá KA. Hann er 38 ára gamall og hefur leikið með Völsungi á undirbúningstímabilinu.