Gísli Eyjólfsson var í dag kynntur sem nýr leikmaður Halmstad. Sænska félagið kaupir hann af Breiðabliki.
Halmstad greinir frá komu Gísla á samfélagsmiðlum en þar kemur ekki fram samningslengd. Ólafur Garðarsson, umboðsmaður Gísla, staðfesti við Fótbolta.net að um þriggja ára samning væri að ræða.
Gísli, sem er 29 ára miðjumaður, skrifar undir ára samning. Hann er annar leikmaðurinn sem Halmstad fær frá Íslandi í vetur því í síðasta mánuði fékk liðið Birni Snæ Ingason, besta leikmann Bestu deildarinnar 2023, í sínar raðir frá Víkingi.

Gísli hefur áður spilað í Svíþjóð en hann var á láni hjá Mjällby fyrri hluta tímabilsins 2019. Hann verður í treyju númer 13 hjá Halmstad.
Gísli hefur undanfarin ár verið algjör lykilmaður í liði Breiðabliks. Hann skoraði þrjú mörk í 15 Evrópuleikjum og sjö mörk í Bestu deildinni á liðinni leiktíð. Hann lagði upp fjögur mörk í deildinni, eitt í Evrópu og eitt í Mjólkurbikarnum.
Halmstad undirbýr sig fyrir komandi tímabil í Allsvenskan. Liðið er í æfingaferð á Spáni og hittir Gísli liðið þar. Á síðasta tímabili endaði Halmstad í 12. sæti deildarinnar.
Athugasemdir