Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   mið 07. febrúar 2024 15:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Grindavík fær Hrannar Inga frá Víkingi (Staðfest)
Hrannar Ingi hér með Kára Árnasyni, yfirmanni fótboltamála hjá Víkingi.
Hrannar Ingi hér með Kára Árnasyni, yfirmanni fótboltamála hjá Víkingi.
Mynd: Víkingur R.
Grindavík hefur fengið Hrannar Inga Magnússon á láni frá frá Íslands- og bikarmeisturum Víkings.

Hrannar Ingi, sem er fæddur árið 2005, spilar sem bakvörður og hefur góða leiðtogahæfileika að því er kemur fram í tilkynningu frá Víkingi frá því í fyrra.

Hrannar Ingi spilaði sinn fyrsta leik í meistaraflokki með Víkingi í lokaleik síðasta tímabils er hann kom inn á sem varamaður í 5-1 sigri gegn Val.

Brynjar Björn Gunnarsson er áfram þjálfari Grindavíkur en liðið hafnaði í sjötta sæti Lengjudeildarinnar á síðasta tímabili.

Komnir
Adam Árni Róbertsson frá Þrótti V.
Óliver Berg Sigurðsson frá Sindra (var á láni)
Hrannar Ingi Magnússon frá Víkingi (á láni)
Matevz Turkus frá Slóveníu
Josip Krznaric frá Króatíu

Farnir
Dagur Austmann Hilmarsson í Fjölni
Edi Horvat til Slóveníu
Freyr Jónsson í Dalvík/Reyni
Guðjón Pétur Lýðsson
Marko Vardic í ÍA
Óskar Örn Hauksson í Víking R.
Ólafur Flóki Stephensen í Val (var á láni)
Tómas Orri Róbertsson í Breiðablik (var á láni)
Alexander Veigar Þórarinsson

Samningslausir
Sigurjón Rúnarsson
Viktor Guðberg Hauksson
Athugasemdir
banner
banner
banner