Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   mið 07. febrúar 2024 18:12
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Arnór Sveinn tekur slaginn áfram með Blikum (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hinn 38 ára gamli Arnór Sveinn Aðalsteinsson hefur gert nýjan eins árs samning við Breiðablik.


Arnór Sveinn er uppalinn hjá Breiðabliki en hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir félagið árið 2003 í bikarleik gegn Njarðvík. Hann spilaði sinn fyrsta deildarleik rúmu ári síðar.

Hann var í liðinu sem vann sér sæti í efstu deild árið 2005 og var í lykilhlutverki þegar liðið varð bikarmeistari árið 2009 og Íslandsmeistari ári síðar.

Hann hélt þá út í atvinnumennsku og lék með Hönefoss í Noregi í tvö ár. Hann snéri aftur heim í Breiðablik en fór svo til KR þar sem hann lék í sex ár áður en hann snéri aftur heim í grænu treyjuna.

Hann hefur leikið 273 leiki með Breiðablik og skorað 19 mörk. Hann á að baki 12 A landsleiki.


Athugasemdir
banner
banner