Fotbolti.net
06.02.24 - 16:11
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Jordan Smylie heim til Ástralíu (Staðfest)

Jordan Smylie heim til Ástralíu (Staðfest)
Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Ástralski sóknarmaðurinn Jordan Smylie hefur skrifað undir samning við ástralska félagið Dandenong Thunder SC.

Smylie kom til Keflavíkur í fyrra og lék fyrri hluta tímabilsins með liðinu í Bestu deildinni. Hann náði ekki að heilla og var lánaður til Hauka seinni hlutann.
Smylie er 23 ára sóknarmaður sem lagði upp eitt mark fyrir Keflavík í tíu leikjum og skoraði eitt mark fyrir Hauka í níu leikjum í 2. deild.

Dandenong Thunder spilar í næstefstu deild í Ástralíu og fer deildin af stað 10. febrúar.

Keflavík
Komnir
Ari Steinn Guðmundsson frá Víði
Kári Sigfússon frá Þrótti Vogum
Mamadou Diaw frá Noregi
Rúnar Gissurarson frá Þrótti Vogum
Daníel Gylfason frá Árbæ (var á láni)
Jordan Smylie frá Haukum (var á láni)

Farnir
Gunnlaugur Fannar Guðmundsson til Fylkis
Jordan Smylie til Ástralíu (var á láni hjá Haukum)
Mathias Rosenörn í Stjörnuna
Magnús Þór Magnússon hættur
Sindri Þór Guðmundsson
Viktor Andri Hafþórsson í Þrótt R.
Ísak Daði Ívarsson í Víking R. (var á láni)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.