Fotbolti.net
07.02.24 - 14:06
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Jesse Lingard til Seúl (Staðfest)

Jesse Lingard til Seúl (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Jesse Lingard, fyrrum leikmaður Manchester United, hefur skrifað undir tveggja ára samning við FC Seoul í Suður-Kóreu. Möguleiki er á árs framlengingu á samningnum.

Lingard, sem er 31 árs Englendingur, hefur verið án félags síðan síðasta sumar þegar samningur hans við Nottingham Forest rann út.
Lingard með tilboð frá 26 félögum
TENGT EFNI

Lingard með tilboð frá 26 félögum

Eins og fyrr segir er hann þekktastur fyrir tíma sinn hjá Man Utd þar sem hann er uppalinn. Hann var hjá United á árunum 2000-2022 og lék alls 232 leiki með United í öllum keppnum og skoraði 35 mörk.

Hans besta tímabil var 2017-18 þegar hann skoraði þrettán mörk í 48 leikjum. Lingard á að baki 32 leiki fyrir enska landsliðið en hefur ekki verið í hópnum undanfarin þrjú ár.

Tímabilið í Kóreu hefst í byrjun mars.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.