Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir hefur gengið frá samningi við írska markvörðinn Keelan Terrell og mun hún spila fyrir félagið í Lengjudeild kvenna í sumar.
Hún hefur undanfarin ár leikið í háskólaboltanum í Bandaríkjunum en hún var þar í Creighton háskóla.
„Keelan er fædd á Írlandi og kemur til okkar sem EU leikmaður. Velkomin í FHL fjölskylduna, Keelan," segir í tilkynningu FHL.
Á síðasta skólaári spilaði Terrell mikilvægt hlutverk í liði Creighton og var hún með fyrirliðabandið.
FHL hafnaði í áttunda sæti af tíu liðum í Lengjudeildinni á síðasta tímabili.
Athugasemdir



