Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   mið 07. febrúar 2024 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Freyr Jónsson í Dalvík/Reyni (Staðfest)
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Dalvík/Reynir tilkynnti í dag um komu Freys Jónssonar til félagsins en hann kemur frá Grindavík.

Freyr er 23 ára leikmaður sem getur bæði spilað í varnarlínunni og á miðjunni. Hann þekkir vel til fyrir norðan því hann lék um árabil með KA í yngri flokkum.

Hann lék sína fyrstu keppnisleiki með meistaraflokki sumarið 2021 þegar hann gekk í raðir Grindavíkur. Tímabilið 2022 lék hann sautján leiki í deildinni og í fyrra kom hann við sögu í sextán leikjum.

„Við erum gríðarlega ánægðir með að hafa fengið Frey til liðs við okkur og hlökkum til samstarfsins í sumar. Freyr verður í leikmannahópi liðsins á morgun þegar liðið leikur gegn KA í fyrsta leik Lengjubikarsins," segir í tilkynningu D/R.

D/R vann 2. deild síðasta sumar og verður því í Lengjudeildinni í sumar.


Athugasemdir
banner
banner
banner